Stuðningur við ESB á Írlandi sá minnsti síðan mælingar hófust

Ný könnun (sjá pdf að neðan) hefur leitt í ljós „minnsta stuðning við aðild að ESB síðan mælingar hófust“ meðal Íra, þar sem áhyggjur af innflytjendamálum, reglusetningu og fullveldi voru meðal þeirra atriða sem svarendur nefndu. Niðurstöðurnar koma fram í European Movement Ireland (EMI) EU Poll 2026, sem birt var nýlega. Þar kemur fram að þótt almennur stuðningur við ESB-aðild sé áfram mikill hafi hann lækkað úr hámarki upp á 93% árið 2019 niður í 82% á Írlandi.

Í skýrslunni er bent á að þótt talan sé óbreytt frá árinu 2025 sé þetta lægsta stig sem mælst hefur síðan könnunin hófst árið 2013. „Þessi rannsóknaráætlun byggðist á úrtaki á landsvísu með 1.200 svarendum í báðum lögsögum,“ sagði EMI í tilkynningu um gögnin.

Samkvæmt könnuninni bentu svarendur sem lýstu óánægju með ESB á meðl annars innflytjendamál 31%, reglugerðarfargan ESB 27% og áhyggjur af þjóðlegu fullveldi 26%.

Færri en helmingur svarenda á Írlandi, 45%, telur að ESB sé á réttri leið. 33% sögðu að sambandið stæði ekki vörð um grunngildi sín.

Meðal þeirra sem sögðu að ESB væri á réttri leið voru algengustu ástæðurnar eining og samvinna 33%, síðan efnahagslegur ávinningur 25% og stöðugleiki og öryggi 19%.

Könnunin sýndi einnig að framfærslukostnaður er áfram stærsta áhyggjuefnið meðal svarenda á Írlandi, eða hjá 58%, þar næst komu innflytjendamál með 48%. Húsnæðismál voru nefnd af 41% svarenda.

Á Norður-Írlandi mældist stuðningur við ESB-aðild 76%, sem er 1% lækkun frá fyrra ári. Innflytjendamál voru einnig nefnd sem aðal áhyggjuefni 42% svarenda en framfærslukostnaður var meira áhyggjuefni 45%.

Könnunin skoðaði einnig viðhorf til stöðu ESB á alþjóðavettvangi og kom í ljós að 71% svarenda á Írlandi telja að sambandið ætti að leitast við meira sjálfstæði frá Bandaríkjunum, en sú tala hækkar í 79% á Norður-Írlandi.

Varðandi varnarmál og öryggi sögðust 48% svarenda á Írlandi styðja aukið samstarf innan ESB á því sviði, á meðan 32% sögðust andvíg og 20% voru óviss. Áhyggjur af hervæðingu ESB hafa minnkað, þar sem 10% lýstu slíkum áhyggjum samanborið við 24% árið 2025.

Varðandi mögulega þjóðaratkvæðagreiðslu um sameinað Írland innan ESB sögðust 59% svarenda á Írlandi myndu greiða atkvæði með tillögunni, 22% voru á móti og 19% óákveðin.

Á Norður-Írlandi sögðust 63% styðja slíka tillögu, á meðan 29% sögðust andvíg og 8% sögðust ekki vita hvernig þau myndu kjósa.

Könnunin sýndi einnig að traust til stofnana er áfram tiltölulega lítið, þar sem 37% svarenda á Írlandi sögðust ekki treysta stjórnvöldum eða stofnunum. Stuðningur við írsku ríkisstjórnina jókst um 6% upp í 36%.

Á Norður-Írlandi var ESB talið sú stofnun sem mest traust naut með 28%, þar næst kom írska ríkisstjórnin með 20%. Stuðningur við framkvæmdastjórn Norður-Írlands mældist 5%, sem er lægsta stig í sögu könnunarinnar.