Reform UK sigurvegari í sveitarstjórnarkosningum

Á fimmtudag fóru fram sveitarstjórnarkosningar í Bretlandi og nú liggur fyrir að Nigel Farage og Reform UK eru stóru sigurvegarar kosninganna á meðan bæði ríkisstjórnarflokkurinn Labour og stjórnarandstöðuflokkurinn Tories tapa fylgi. Úrslitin auka þrýstinginn á forsætisráðherrann Keir Starmer um að segja af sér.

Bresku sveitarstjórnarkosningarnar ná til 5.066 sæta í 136 sveitarfélögum á Englandi. Sama dag fóru einnig fram kosningar til skoska þingsins og velska Senedd-þingsins. Kosningarnar eru taldar mikilvægt próf fyrir stjórnmálaflokkana.

Mikilk óánægja með Keir Satmer

Kosningaúrslitin hafa leitt til gagnrýni á forsætisráðherrann Keir Starmer einnig úr eigin flokki. Leiðandi maður Labour, Jon Trickett, sagði að Starmer „þyrfti að fara“ á meðan fyrrverandi skuggafjármálaráðherrann John McDonnell sagði að leiðtogaspurningin yrði nú „óhjákvæmilega að vera á dagskránni.“

Á föstudagsmorgni liggur fyrir að sósíaldemókratíski Labour-flokkurinn hefur misst meirihluta sinn í fimm sveitarstjórnum og að flokkurinn hefur tapað nærri 200 sætum. Íhaldsflokkurinn Tories tapar einnig verulega og missir um 100 sæti. Reform UK er stórsigurvegari kosningannna og hefur unnið meira en 250 sveitarstjórnarsæti.

Nigel Farage lýsir fyrstu niðurstöðunum sem „sögulegum breytingum í breskum stjórnmálum“ og segir að flokkur hans hafi „fengið frábærar prósentutölur í hefðbundnum, gömlum Labour-kjördæmum“.

Forsætisráðherrann Keir Starmer er afar óvinsæll meðal Breta og eftir því sem niðurstöðurnar berast krefjast sífellt fleiri – einnig innan Labour – afsagnar hans.

Í Skotlandi og Wales er búist við að þjóðernisflokkarnir vinni kosningarnar til svæðisþinganna. Einnig bæta Umhverfisflokkurinn Green Party og Frjálslyndir demókratar við sig fylgi.