Þeir nafnarnir Gústaf Skúlason og Gústaf Níelson ræða saman í þessu hlaðvarpi Þjóðólfs þá ósvífni yfirvalda að skella ESB-málinu ofan í yfirstandandi sveitarstjórnarkosningar. Heimsmálin eru rædd og drottnunargirni Evrópusambandsins í sífellt furðulegri heimi, þar sem herlúðrar gjalla. Gústaf Nílesson segir að það séu mikil mistök að semja ekki um frið í Úkraínu sem eiginlega ætti að vera einfalt. Hann sagði útlitið allt annað en gott ef stjórnmálamenn grafa sig niður í fræðileg byrgi sem að lokum byrgir þeim sýn sem getur endað með ósköpum fyrir okkur öll.
Fólk fer ekki hlaðið pokum úr mollinu í strætó
Þar sem sveitarstjórnarkosningar eru á dagskrá, þá voru borgarmálin í Reykjavík til umræðu og sú fáránlega afstaða græningja borgarinnar að vera sífellt að þrengja að einkabílnum. Gústaf Níelsson bendir á að hugmyndin að borgarlínunni sé sótt til kommúnistatímabils Austur-Þýskalands, því fólk þurfti að ferðast frá heimili til verksmiðju og til baka aftur. Hins vegar eru aðstæður á Íslandi illa fallnar til að fólk hírist í snjófargi við stoppistöðvar eða reyni að draga klyfjaðar kerrur úr matvörubúðinni heim. Bíll er einfaldlega fararmáti Íslendinga og þeir sem eru límdir við strætó snúa öllu á hvolf.
Léleg lestrarkunnátta er falleinkunn fyrir skólakerfið
Umræðan fór út í hrunið menntakerfi sem getur ekki lengur kennt börnum að lesa eða skrifa. Spurningin er, hvað eru kennararnir að gera í kennslutímum fyrst árangurinn er svona hrikalega lélegur? Vinstri stefnan sem tröllríður íslenskum stofnunum um þessar mundir er einmitt skólabókardæmi um hvernig hægt er að afvegaleiða þjóðfélagið. Jafnaðarstefnan fyrirskipar að öll börn eigi að vera jöfn sem þýðir að námsárangurinn er flattur út til að hæfa þeim slökustu. Fólk sem ekki kann að lesa eða skrifa verður algjörlega utangátta.
Margt fleira var á góma og var ákveðið að ræða aftur saman að afstöðunum sveitarstjórnarkosningum og taka púlsinn á þjóðmálunum.
Smelltu á spilarann hér að neðan til að hlusta á þáttinn:
