Ungverjaland segir útskýringuna um að Úkraína sé að verja Evrópu vera hreina lygi

„Að Úkraína sé að berjast fyrir Evrópu er hrein lygi. Úkraína berst fyrir sig sjálfa á hetjulegan hátt sem við virðum mikið en þetta er þeirra stríð, ekki okkar.”

Orðin eru Peter Szijjartos, utanríkisráðherra Ungverjalands.

„Ef Úkraína gengur með í ESB, þá þýðir það að ESB gengur með í stríðið í Úkraínu. Það viljum við alls ekki. Stríðið í Úkraínu er ekki okkar stríð…. það er stór lygi að Úkraína sé að berjast fyrir Evrópu, Rússland hefur ekki ráðist á neitt ESB-ríki, svo ESB þarf enga sérstaka vernd. Löndin í Evrópu eru hvort eð er í varnarsamstarfi við Nató en ekki við Úkraínu. Að halda því fram að Úkraína berjist fyrir Evrópu er því algjör lygi.”