Úkrínska þjóðin hefur minnkað næstum um helming

Kænugarður ár 2014, þegar valdarán var framið í Úkraínu með aðstoð Georg Soros, CIA, Pentagon m.fl.

Sænska Expressen segir með tilvísun í Wall Street Journal að íbúum Úkraínu hafi fækkað um tæplega helming á rúmum 20 árum. Samtímis greinir Financial Times frá því samkvæmt upplýsingum liðsforingja í her Úkraínu, að 50-70% hermanna særast eða verða drepnir innan örfárra daga eftir að þeir hafa verið neyddir í herinn. Yfir milljón hermanna hafa fallið og særst í stríðinu sem gefur stærðarmynd af þessum hrottalegu átökum.

Íbúum Úkraínu hefur fækkað um helming frá árinu 2001. Við síðustu íbúatalningu það ár bjuggu 48 milljónir í landinu. Í dag er það tæplega helmingur. Talan fór niður í um 40 milljónir í ársbyrjun 2022. Samkvæmt Expressen búa um 25-29 milljónir manns á því landsvæði sem Úkraína ræður yfir í dag. Samtímis hríðfellur fæðingartíðnin. Þetta eru skelfilegar tölur fyrir Úkrainu og þá fórn sem verið er að færa vegna stríðs Vesturlanda gegn Rússlandi.

Þeir sem eru þvingaðir inn í úkraínska herinn í dag duga lítið sem hermenn og verða fljótlega drepnir. Úkraínskir ​​liðsforingjar á staðnum segja að 50-70% verða drepnir eða særast á örfáum dögum. Financial Times ræddi við fjóra liðsforingja við víglínuna í Donetsk. Samkvæmt liðsforingjunum skortir nýju hermennina grundvallar bardagahæfileika og sannfæringu og flýja oftast, þegar skothríð hefst.

Meðalaldurinn í Úkraínuher eða það sem er eftir af honum er 45 ára aldur að sögn Financial Times.

Hér að neðan má heyra fréttamann BBC, David Stern, lýsa Kænugarði sem stríðsvelli í átökunum 2014 og að hætta sé á innbyrðisstríði í landinu:

Fara efst á síðu