Bandaríkjastjórn hefur ákveðið að draga Bandaríkin úr samstarfi við 66 alþjóðlegar stofnanir, þar á meðal 31 stofnun Sameinuðu þjóðanna. Forsetaskipun kom í gær og greiðslur stöðvaðar og stjórnvöld hefja brottför úr viðkomandi stofnunum tafarlaust. Með þessu sýna Bandaríkjamenn að þeim er alvara með slagorðinu Báknið burt! sem sumir stjórnmálamenn á Íslandi skreyta sig með án þess að hreyfa litlafingur. Hvað þá forsætisráðherra Íslands sem sýnir myndir af sér með sleggjuna sem hún notar til að brjóta niður atvinnulífið og vinnugleði landsmanna.
Bandaríkjamenn eru ekkert að hætta í alþjóðasamstarfi eins og kerlingarnar Úrsúla, Kristrún, Starmer, Makrón og Þorgerður reka upp angistarvein um, heldur eru þeir að hrista upp í kerfinu og krefjast skilmerkilegs gagns af þeim sem þar starfa í stað sofandi gagnslauss búrókratahers sem hefur hreiðrað um sig í þessum stofnunum og lifir velsældarlífi á kostnað skattgreiðenda.
Það fer betur á því að nota peningana fyrir hversdagslíf Bandaríkjanna eða eins og Rubio utanríkisráðherra segir:
„Það er ekki lengur ásættanlegt að senda þessum stofnunum blóð, svita og peninga bandaríska fólksins – án þess að neitt komi á móti.“
Íslenska ríkisstjórnin velur aðra leið: Leið sósíalismans sem grasserar í alþjóðastofnunum í samstarfi við spilltustu fjármálajöfra heims eins og George Soros og Bill Gates. Þar er sú stefna rekin sem gagnrýnendur kalla glóbalisma, það er að segja að þeir sem setja alþjóðalög gera það út frá eigin hagsmunum og stækka báknið á kostnað skattgreiðenda. Frá þessum stofnunum hafa öll leiðinlegustu mál síðustu ára komið: Opin landamæri, hamfarhlýnun, heimsfaraldur, trans hugmyndafræðin og Úkraínustríðið.
Síðan koma keyptir stjórnmálamenn og afgreiða öll mál með því að segja að það verði að fylgja alþjóðalögum og þá sérstaklega reglum Sameinuðu þjóðanna. Næsta skref er að segja að öll heimsbyggðin verði að fylgja miðstjórn Kommúnistaflokks Kína. Og þar eiga stöllurnar í íslensku ríkisstjórninni ásamt forseta Íslands raunverulega heima með öllu sínu skítkasti á löglega kjörinn forseta Bandaríkjanna og frelsisþrá Bandaríkjamanna.
Íslenska ríkisstjórnin tilheyrir myrkri miðalda. Bandaríska ríkisstjórnin tilheyrir nútímanum og framtíðinni.
Krefjast verður þingrofs og nýrra alþingiskosninga svo hægt verði að henda þessum kerlingardruslum og öðru pakki á Alþingi út úr valdastólunum áður en þeim tekst að eyðileggja lýðveldið Ísland.
