Þýskaland neyðir Lexus til að slökkva á hitakerfinu til að „bjarga loftslaginu“

Í síðustu viku neyddu þýsk yfirvöld lúxusbílaframleiðandann Lexus frá Toyota til að slökkva á hitakerfi sínu vegna meintra umhverfisáhrifa þess. Lokun hitakerfisins var framkvæmd með fjarstýringu.

Í síðustu viku greindu þýskir fjölmiðlar frá lokuninni sem yfirvöld neyddu Toyota og Lexus til að gera. Samkvæmt fréttum var einnig slökkt skyndilega á aukahitakerfinu Auxiliary Climate Control hjá þúsundum annarra ökumanna Toyota og Lexus. Þessi aðgerð hefur valdið ruglingi og vonbrigðum sem lýst er á netinu.

Árið 2025 seldi fyrirtækið meira en 100.000 bíla í Þýskalandi og lokun hitakerfisins hefur áhrif á meirihluta þeirra. Bílastæðahitun með MyToyota eða Lexus Link Plus öppum hefur verið gerð óvirk í bílum með brunahreyfli um allt Þýskaland að sögn Ralphs Muller, talsmanns Toyota.

Toyota slökkti á upphituninni „til að vernda notendur ökutækjanna fyrir því að hljóta sektir.“ Löggjafarvaldið lítur á fjarstýrða forhitun véla sem „óþarfan akstur“ sem veldur „ónauðsynlegum útblæstri.“

Ljósmynd: Michael Sheehan, CC BY 2.0


Rafknúin ökutæki verða ekki fyrir áhrifum

Toyota hélt því fram að þessi aðgerð verndaði eigendur bílanna fyrir hugsanlegum sektum frá eftirlitsaðilum og notuðu fjarstýrðan aðgang til að slökkva á þessum upphitunarmöguleika til að uppfylla umhverfisreglur stjórnvalda.

Eingöngu rafknúin ökutæki og tengiltvinnbílar, þar sem innri hitarinn virkar án þess að það þurfi að ræsa brunahreyfilinn, komast hjá þessum lokunum.

Fara efst á síðu