Swebbtv veitir Elon Musk heiðursviðurkenningu fyrir frábær störf í þágu málfrelsis í heiminumÍ

Í gærkvöldi hélt sænska SWEBBTV upp á 10 ára afmæli sitt í Stokkhólmi með mikilli veislu á Södermalm. Fjöldi ræðumanna fluttu stutt ávörp, sjónvarpið heiðraði starfsmenn og þátttakendur í dagskrá sinni og frumkvöðullinn og forstjóri Swebbtv, Mikal Willgert, sem er fjölmiðlamaður af guðs náð veitti helstu stuðningsmönnum sjónvarpsins viðurkenningu. Sérstaka heiðursviðurkenningu fékk Elon Musk fyrir baráttu sína fyrir málfrelsi í heiminum og sagði Mikael Willgert í ávarpi sínu að Musk hefði gjörbreytt kjörum almennings með yfirtöku á Twitter sem hann síðar breytti í X.

Forstjórar alþjóðlegra hrægammasjóða og ESB hafa ekki getað tekið sig saman eftir að X kom til sögunnar, þar sem almenningur nýtur málfrelsis og hefur ESB sektað X gríðarháum fjárhæðum fyrir að neita að koma á þeirri ritskoðun sem ESB hefur tekist að fá aðra netrisa til að gera. Bandaríkjaþing hefur ritskoðun ESB til sérstakrar rannsóknar og hefur bannfært forystuaðila Stafrænu þjónustulaga ESB Digital Service Act frá því að koma til Bandaríkjanna.

Í Svíþjóð hefur verkalýðshreyfingin gert mikið til að eyðileggja fyrir Tesla í Svíþjóð, þannig að vonandi gleðst Musk yfir því, að til eru Svíar sem styðja hann. Hér að neðan er þýðing á yfirlýsingu Mikael Willgert varðandi 10 ára heiðursviðurkenningu sjónvarpsins Swebbtv til Elon Musk:

„Elon Musk hefur verið útnefndur handhafi Frelsisviðurkenningar fyrir brautryðjendastörf sín við að verja tjáningarfrelsið á tímum þegar ritskoðun og stjórn þess sem má upplýsinga eykst víða um heim.

Með kaupum sínum á Twitter árið 2022 breytti hann vettvanginum í vettvang fyrir opna umræðu með því að draga verulega úr efnisstýringu, endurvirkja reikninga og innleiða aukið gagnsæi um reiknirit og svokallað shadowbanning.

Ákvörðun hans um að birta Twitter Files leiddi í ljós kerfisbundið samstarf milli stórra tæknifyrirtækja, ríkisstjórna og leyniþjónusta til að þagga niður í röddum sem voru á annarri skoðun.

Elon Musk hefur gert tjáningarfrelsið að meginreglu, þrátt fyrir verulegt tap á auglýsingatekjum og gífurlega persónulega og stofnanalega andstöðu.

Framlag hans hefur opnað fyrir samskipti, hvatt milljónir manna til að tjá sig frjálslega og breytt allri alþjóðlegri umræðu um tjáningarfrelsi.

Starf Elon Musks og opinber afstaða hans áttu einnig ríkan þátt í að veita Donald Trump innblástur til að gefa út hina mikilvægu forsetatilskipun „14149: Endurreisn málfrelsis og lokun á ritskoðun ríkisins / Restoring Freedom of Speech and Ending Federal Censorship“. Sú tilskipun átti verulegan þátt í víðtækari pólitískri breytingu sem leiddi til þess að YouTube, endurvirkjaði Swebbtv-rásina eftir fimm ár og baðst afsökunar á fyrri ákvörðun sinni um að loka henni.

Fyrir þessar einstöku aðgerðir í baráttunni gegn ritskoðun, falsfréttum og fyrir opnum samskiptum á heimsvísu er Elon Musk veitt Swedish Web Television Free Speech Award 2026.

Mikael Willgert

forstjóri Svensk Webbtelevision / Swebbtv”