Svona er sænska helgin: Sjúkraliði drepinn í útkalli, sprengjuárásir, menn drepnir í skotárásum osfrv.

Maður getur spurt, hvaða tilraun yfirvöld eru að gera í Svíþjóð. Það er ekki hægt að kveikja á útvarpi, sjónvarpi eða fletta helstu blöðunum án frétta um blóðug endalok lífs alls konar fólks í skotárásum, sprengingum og hnífsstungum. Engu er líkar en að yfirvöld séu að hækka þol landsmanna gegn fljótandi blóði næstum því hvar sem er í landinu. Kemur sér kannski vel sem undirbúningur, þegar stríðsbrjálaðir stjórnmálamenn fá loksins útrás fyrir allt Rússahatrið og tekst að koma allri Evrópu í enn eina heimsstyrjöldina sem verður engri annarri lík. En nóg af líkum verður það, kannski gufa flestir upp í geislavirkt ryk en allir geta dáið rólegir, því ofbeldisdauðinn er ekki neitt mál lengur. Fyrir 20 árum hefði fólk sagt Guuuð minn góður, í dag yppa bara flestir öxlum: Ég lifi, ég slapp í þetta sinn. Svíþjóð hefur á áratug breyst í rússneska rúllettu og enginn er öruggur neins staðar.

Í gær laugardag, var sjúkraflutningakona drepin þegar hún var ásamt félögum sínum í SOS-útkalli í Nordanstig sveitarfélaginu vestur af Gävle. Ráðist var á hana við komuna og hún stungin með beittu eggvopni á staðnum. Þrátt fyrir snör viðbrögð og aðstoð þyrlu, þá tókst ekki að bjarga lífi hennar. 25 ára gamall maður hefur verið handtekinn og er í haldi grunaður um morð, að því er SVT greinir frá. Félag sjúkraflutningastarfsmanna segist hafa varað við þessu í lengri tíma en yfirvöld hlæja bara, þegar talað er um verndarbúnað fyrir sjúkraliðana. Formaður félagsins segir í viðtali, að yfirvöld, lögregla og SOS keyri ekki saman lista yfir heimilisföng hættulegs fólks við útköll sjúkrabíla eins og gert er í öðrum löndum, þá blikkar rautt ljós í sjúkrabílnum sem bíður þá eftir að lögreglan mæti fyrst á staðinn og gefi grænt ljós fyrir sjúkraflutningamenn. Blessuð sé minning konunnar sem samstarfsmennirnir lýsa að hafi verið frábær starfsfélagi, róleg og hnitmiðuð.

Sama leikritið er síðan endursýnt í fjölmiðlum, talað við skelkuð vitni, forsætisráðherrann grætur krókadílatári og svo er sagt frá næsta drápi og leikritið endursýnt og endursýnt og endursýnt, þar til allir eru orðnir svo stjarfir að þeir taka ekki eftir neinu óvenjulegu lengur.

Dæmi um annað ofbeldi sama dag: Sprengt við húsnæði í Spånga í Stokkhólmi, enginn særður, skotárás í Uppsala, skemmdir á húsi en enginn særður eða drepinn svo vitað sé, hnífabardagi í Suður-Stokkhólmi, einn fluttur særður á sjúkrahús, skotárás í Hagsätra í Stokkhóllmi a.mk. einn drepinn þar, skotárás í Norrköping og amk. einn drepinn þar, hús útrýmd í Malmö vegna sprengjufundar í stigahúsi, lögreglan fann handsprengju og gerði upptæka. Öll nóttin er eftir og eflaust hefur miklu meira blóð flotið á þessum eina laugardegi, þegar dagur rís og hægt að meta ástandið í öllu landinu…..