Ráðherra Zelenský kom undan 13 milljörðum til skattaparadísar – Fóru grænar gjafir Íslands til Úkraínu þangað?

Fv. orku- og dómsmálaráðherra Úkraínu, Herman Halusjtjenko, er kærður fyrir umfangsmikinn peningaþvott, grunaður um að hafa flutt andvirði rúmlega 13 milljarða íslenskra króna til skattaskjóls í Kyrrahafi. Peningarnir voru síðan fluttir áfram á aðra reikninga í Evrópu samtímis og fjölskylda hans lifði lúxuslífi í Sviss. Kannski hafa þeir peningar, – 1,4 milljónir evra, sem Katrín Jakobsdóttir fv. forsætisráðherra afhenti Halusjtjenko sem grænt framlag Íslands til Úkraínu farið í lúxuslíf fjölskyldu úkraínska orkumálaráðherrans.

Ákæran sem úkraínsku fjölmiðlarnir vekja athygli á er hluti af umfangsmiklu spillingarhneyksli, sem rannsökuð er undir nafninu Operation Midas og varðar yfir 112 milljónir dala – það er að segja meira en 13 milljarða íslenskra króna – sem hafa horfið úr ríkisreknum kjarnorkuiðnaði Úkraínu.

Hneykslið skekur innsta hring forsetans Volodymyr Zelenskyj og hafa margir af nánustu ráðherrum hans og starfsmönnum verið neyddir til að segja af sér. Samkvæmt ríkisstofnuninni NABU, sem sér um baráttu gegn spillingu í Úkraínu, eiga Herman Halusjtjenko og fjölskyldumeðlimir hans að hafa stolið peningunum og sett í fjárfestingarsjóð sem var stofnaður til að þvo peningana sem var stolið frá orkufyrirtækinu Energoatom.

Fjárfestingarfénu ver stjórnað af langvarandi samstarfsmanni Halusjtjenko sem að sögn veitti þjónustu við peningaþvott. Nabu segir í yfirlýsingu fyrr í vikunni:

„Til að fela tengsl orkumálaráðherrans voru stofnuð tvö fyrirtæki á Marshall-eyjum sem gengu inn í samsteypu sem er skráð í Saint Kitts og Nevis. Eiginkona hans og fjögur börn voru skráð sem umboðsmenn beggja fyrirtækjanna.“

Yfirvöld telja að fyrirtækin hafi verið notuð til að flytja peninga á reikninga fjárfestingarfélagsins í þremur svissneskum bönkum – allt til hagsbóta fyrir Halusjtjenko.

Lifði lúxuslífi í Sviss

Rannsakendur gátu með aðstoð eftirlitsaðila í 13 löndum rakið hvernig peningarnir voru fluttir yfir til bankareikninga í Sviss:

„Yfir 7,4 milljónir dala voru fluttar á reikninga fjárfestingafélagsins sem fjölskylda hins grunaða stjórnaði. Að auki voru 1,3 milljónir svissneskra franka og 2,4 milljónir evra tekið út í reiðufé og flutt beint til fjölskyldunnar í Sviss.“

Hluti peninganna hafa farið í að fjármagna menntun barna við dýra skóla í Sviss og einnig verið lagðir inn á reikninga fyrrverandi eiginkonu hans. Hluti var lagður inn á bankareikninga og frá þeim fékk fjölskyldan frekari ávöxtun sem fóru í eigin neyslu.

Herman Halusjtjenko neitar sök. Hann reyndi í vikunni að flýja frá Úkraínu en var handtekinn þegar hann var að yfirgefa landið. Þingið vék honum úr stöðu dómsmálaráðherra í nóvember 2025, þegar rannsóknin var vel á veg komin.

Halusjtjenko er ákærður fyrir peningaþvott og þátttöku í glæpasamtökum og á yfir yfir höfði sér 12 ára fangelsi.

Katrín dældi skattpeningum frá Íslandi í Halusjtjenko

Samkvæmt upplýsingum gervigreindar Google, þá greindi úkraínska orkumálaráðuneytið frá því þann 13. mars 2023 að sendinefnd frá Íslandi, undir forystu Katrínar Jakobsdóttur, þáverandi forsætisráðherra, hefði hitt Halusjtjenko. Á fundinum þakkaði Halusjtjenko Íslandi fyrir 1,4 milljóna evra framlag til orkustuðningssjóðs Úkraínu og ræddi möguleika á samstarfi um endurnýjanlega orku, bæði vatnsorku og vindorku. Samkvæmt Iceland Review hafði Ísland greitt meira en 13 milljarða íslenskra króna til Úkraínu frá 2022 í ágúst 2025.

Hversu mikið af þessum peningum hafa horfið í lúxuslíf fjölskyldu orkumálaráðherra Úkraínu Halusjtjenko eða í yfirgefin gullklósett í Úkraínu er ekki vitað. Ábyrgðarleysi íslenskra ráðamanna sem heilalaust og blint fylgja tilmælum ESB leiðir til gríðarlegs tjóns fyrir íslenska skattgreiðendur.

Aðrar Norðurlandaþjóðir eru síst betri. Í byrjun febrúar tilkynnti tilkynnti sænska ríkisstjórnin á vefsíðu sinni að frá innrás Rússa í Úkraínu í febrúar 2022 hafi sænskir ​​skattgreiðendur lagt fram sem nemur um það bil 114 milljörðum sænskra króna til ýmissa aðgerða og enn meira fé væri á leiðinni. 114 milljarðar sænskra króna eru yfir eitt þúsund og fimm hundrað milljarða íslenskra króna.

Steve Hanke er prófessor í hagnýtri hagfræði við Johns Hopkins háskólann í Baltimore sem var efnahagsráðgjafi Ronald Reagan forseta á níunda áratugnum heldur því fram að um 30% af aðstoð Nató-ríkjanna til Úkraínu glatist í spillingu.

Ebba Busch orkumálaráðherra Svía á vart orð til að lýsa hrifningu sinni á Halusjtjenko og segir það heiður að hafa hitt manninn. Verður forvitnilegt að heyra, hvernig hún kyngir bitanum um peningaþjófnað úkraínska starfsbróður síns.

Hér að neðan er myndskeið frá blaðamannafundi orkumálaráðherra Úkraínu og Svíþjóðar í Stokkhólmi 27. febrúar 2023.