Trump hæðist að Biden og sjálfvirkum penna sem skrifaði undir fjölda fyrirskipana án þess að Biden hefði hugmynd eða skilning á því, hvað var að gerast.
Donald Trump fullyrðir að náðanirnar séu ólöglegar sem Joe Biden, forveri hans, veitti hópi stjórnmálamanna áður en hann lét af embætti. Trump heldur því fram að skjölin hafi verið undirrituð án vitundar Biden og að Hvíta húsið hafi notað „sjálfvirkan penna“ eða vél sem afritaði undirskrift forsetans.
Ákvörðun Trumps varðar meðlimi hinnar umdeildu svo kölluðu 6. janúar nefndar sem var skipuð af demókrötum á þinginu til að rannsaka mótmælin við þinghúsið 6. janúar 2021.
Í færslu á Truth Social fullyrðir Trump að náðaðir einstaklingar verði rannsakaðir. Trump bendir á að nefndarmenn hafi í raun verið að náða sig sjálfa án vitundar Bidens. Trump skrifaði:
„Með öðrum orðum, Joe Biden skrifaði ekki undir og það sem er enn þá mikilvægara: hann vissi ekkert um málið! Nauðsynleg náðunarskjöl voru ekki útskýrð fyrir Biden og voru ekki samþykkt af honum. Hann vissi ekkert um þau og þeir sem gerðu þetta gætu því hafa framið glæp.“
Bandarískir fjölmiðlar hafa ekki staðfest að Hvíta húsið hafi í raun notað sjálfvirkan penna og Biden-stjórnin hefur enn ekki tjáð sig um fullyrðingar Trumps. Hugveitan Heritage Foundation hafði áður framkvæmt greiningu á undirskriftum Bidens og komst að því að náðanir Bidens 19. janúar voru allar með „nákvæmlega“ sömu sjálfstýrðri undirskrift. Hugveitan spyr:
„Hver er á bak við þennan sjálfvirka penna?“
Donald Trump náðaði sjálfur nýlega fólk sem var dæmt fyrir aðild sína að mótmælunum við þinghúsið þann 6. janúar 2021.
