Merkel fékk heiðursorðu af ESB – krefst aukinnar ritskoðunar

ESB hefur afhent afhent Angela Merkel nýja evrópska heiðursorðu. Fyrrverandi þýski kanslarinn tók við heiðursviðurkenningunni í Strasbourg. Í þakkarræðu sinni krafðist Merkel enn harðari ritskoðunar á Internet. Ursula von der Leyen afhenti heiðursorðuna en hún var varnarmálaráðherra í stjórn Merkels á meðan hælisleitendakreppan stóð yfir.

Angela Merkel ver þá ákvörðun sína að opna landamæri Þýskalands fyrir milljónum araba í hælisleitendakreppunni árið 2015. Heiðursorðan var afhent í þinginu persónulega af forseta framkvæmdastjórnar ESB, Ursula von der Leyen.

Meginreglur réttarríkisins

Viðurkenningin er samkvæmt ESB veitt einstaklingum sem hafa lagt sitt af mörkum til „evrópskrar samþættingar“ eða varið gildi í sáttmálum ESB, svo sem „mannréttindi“, „lýðræði“ og „meginreglur réttarríkisins.“ Dómnefndin benti meðal annars á hlutverk Merkels í Evrópu og mikilvægi hennar fyrir Lissabonsáttmálann.

Fyrrverandi forseti framkvæmdastjórnar ESB, José Manuel Barroso, hrósaði kanslaranum fyrrverandi fyrir

„óþreytandi skuldbindingu hennar við evrópska samþættingu og sameiginleg gildi, fyrir að byggja brýr milli austurs og vesturs og fyrir að styrkja stöðugleika og samheldni Evrópu.“

Alls voru 20 einstaklingar úr stjórnmálum, menningu og íþróttum heiðraðir – þar á meðal forseti Úkraínu, Volodymyr Zelenský og fyrrverandi forseti Póllands, Lech Wałęsa.

Varaði við tjáningarfrelsi á Internet

Í ræðu sinni varaði Merkel við þróun tjáningarfrelsis á Internet. Hin 71 árs gamla fyrrverandi íbúi Austur-Þýskalands sagði að ESB væri þegar í fararbroddi hvað varðar reglusetningu (= ritskoðun/GS) og að sambandið ætti að halda áfram á þeirri braut. – Haldið áfram á leiðinni að reglusetningu samfélagsmiðla, sagði hún.

Samkvæmt Merkel er lýðræðinu ógnað ef fólk er ekki látið bera ábyrgð á „lygum“ sem skrifaðar eru á netinu. Hún hélt því fram að upplýsingar ESB væri í hættu vegna samfélagsmiðla þegar „staðreyndir eru ekki lengur staðreyndir“ og „sannleikur getur verið kallaður lygi.“

Á meðan hælisleitendakreppan stóð yfir árin 2015 og 2016 opnaði ríkisstjórn Merkels landamæri Þýskalands undir slagorðinu Við ráðum við þetta „Wir schaffen das.“ Þá komu um ein milljón einstaklinga, aðallega yngri arabískir karlmenn, til landsins á örfáum mánuðum. Ursula von der Leyen var þá varnarmálaráðherra Þýskalands.

Verðlaunuð af Sameinuðu þjóðunum fyrir íbúaskipti

Merkel hefur áður einnig verið verðlaunuð af UNESCO. Í febrúar 2023 ferðaðist hún til Fílabeinsstrandarinnar til að taka við friðarverðlaunum UNESCO, Félix Houphouët-Boigny. Fékk hún verðlaunin sérstaklega fyrir umfangsmikla móttöku sína á innflytjendum frá þriðja heiminum. Formaður dómnefndarinnar, Denis Mukwege, sagði:

„Allir meðlimir dómnefndarinnar voru snortnir af hugrakkri ákvörðun hennar árið 2015 um að taka á móti meira en 1,2 milljónum flóttamanna, sérstaklega frá Sýrlandi, Írak, Afganistan og Erítreu. Það er arfleifðin sem hún skilur eftir sig.“