Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins skrifar á Facebook:
Ég er þakklát, stolt og meyr eftir stórkostlegan árangur Sjálfstæðisflokksins í sveitarstjórnarkosningunum í gær.
Niðurstaða kosninganna er skýr. Sjálfstæðisflokkurinn er langstærsta stjórnmálaaflið á sveitarstjórnarstiginu.
Við fengum 128 kjörna fulltrúa um allt land og rúmlega 42% atkvæða á landsvísu. Sjálfstæðisflokkurinn fékk hreinan meirihluta í 11 sveitarfélögum; Í Garðabæ, Snæfellsbæ, Árborg, Ölfusi, Vestmannaeyjum, Húnabyggð, Seltjarnarnesi, Rangárþingi eystra, Hrunamannahreppi, Skaftárhreppi og Kópavogi þar sem Sjálfstæðisflokkurinn fær sína bestu kosningu í tuttugu ár. Ótrúlegur árangur.
Þessi sigur tilheyrir Sjálfstæðismönnum um allt land. Öllum þeim frambjóðendum sem stigu fram, sjálfboðaliðum sem gáfu allt sitt í baráttuna. Hann tilheyrir grasrótinni, félögunum okkar, fjölskyldunum sem stóðu vaktina með okkur og kjósendum sem sýndu okkur traust.
Síðustu vikur hafa verið ævintýri líkastar. Að fá að vera hluti af þeirri sterku heild sem Sjálfstæðisflokkurinn er, finna kraftinn í fólkinu okkar um allt land og sjá hvað gerist þegar við stöndum saman hefur verið ómetanlegt. Við mættum sameinuð og sterk til leiks. Þá stöðvar okkur ekkert.
Við ætluðum að stækka Sjálfstæðisflokkinn og það var nákvæmlega það sem við gerðum.
Ég er sérstaklega stolt af árangri okkar í Reykjavík þar sem oddviti okkar Hildur Björnsdóttir er nú í lykilstöðu til að leiða þær breytingar sem borgarbúar hafa kallað eftir.
Mér finnst ódýr útskýring að þessi árangur hafi orðið til vegna einhverrar hægrisveiflu í samfélaginu. Þetta er sveifla með Sjálfstæðisflokknum og hún kom ekki af sjálfu sér heldur vegna þeirrar ómældu vinnu sem við höfum lagt á okkur og einnig vegna þess að kjósendur treysta Sjálfstæðisflokknum best til að leiða sín samfélög.
Þá verður ekki litið framhjá því hvernig forsætisráðherra beitti sér í kosningabaráttunni. Ríkisstjórnin ætlaði sér að setja svip sinn á kosningarnar en niðurstaðan er áfellisdómur yfir ríkisstjórn sem hefur misst tengslin við fólkið í landinu.
En fyrst og fremst er þessi niðurstaða traustyfirlýsing til Sjálfstæðisflokksins. Við ætlum okkur að standa undir því trausti og nú brettum við upp ermar.
Takk fyrir traustið og takk fyrir fyrir baráttuna síðustu vikur sem við getum sannarlega verið stolt af.
Áfram höldum við að stækka Sjálfstæðisflokkinn, stétt með stétt.
