Kristrún  Frostadóttir í þjónustu glóbalismans

Forsætisráðherra Íslands, Kristrún Frostadóttir, hefur verið valin í Young Global Leaders árgang 2026 hjá World Economic Forum, WEF, samkvæmt opinberri tilkynningu samtakanna sem birt var 16. apríl 2026.  

Ungir alþjóða leiðtogar Young Global Leaders er alþjóðlegt leiðtoganet á vegum WEF sem var stofnað af Klaus Schwab og hefur verið starfrækt í núverandi mynd frá 2003. Markmið verkefnisins er að velja áhrifamikið fólk undir fertugu úr stjórnmálum, viðskiptum, vísindum, fjölmiðlum og menningu og tengja það saman í alþjóðlegt leiðtoganet.  

Samkvæmt WEF voru alls 118 einstaklingar frá um 55 löndum valdir í árgang 2026. Í hópnum eru ráðherrar, frumkvöðlar, fjárfestar, fræðimenn og aðrir leiðtogar undir fertugu. Kristrún er nefnd sérstaklega í opinberri kynningu WEF á árganginum.  

Valferlið byggir á tilnefningum og mati innan netsins. Samkvæmt upplýsingum um Unga alþjóða leiðtoga þurfa þátttakendur að vera undir 38 ára aldri við inngöngu og teljast hafa sýnt framúrskarandi árangur og möguleika á alþjóðlegum áhrifum.  

WEF segir að þátttakendur fari í þriggja ára leiðtogaáætlun sem felur meðal annars í sér:

  • stjórnendanám
  • alþjóðlega fundi
  • vinnustofur
  • tengslamyndun
  • og samstarfsverkefni tengd „framtíð heimsins“ 

Það er því ekki hefðbundið „nám“ með prófgráðu heldur alþjóðlegt leiðtoganet og þróunarverkefni fyrir valda einstaklinga. Samkvæmt WEF tekur árgangur 2026 þátt í þessari áætlun næstu þrjú ár, sem þýðir að þátttöku Kristrúnar lýkur formlega ári 2029.