Illa reittir hænurassar

Baldur Hermannsson hjá Þjóðmálum skrifar á Facebook í tilefni kosningaúrslitanna:

Ekki kann ég skil á spádómi um skammlífi stjórnarinnar, en hitt er víst að fólkið hefur talað og greitt henni þunga pústra víða um landið.

Blessaðar Valkyrjurnar eru eins og illa reittir hænurassar í nöprum norðangjósti og geta ekki lengur falið sig undir taumlausu og innantómu mærðarhjali hver um aðra. Þær geta vissulega húkt áfram á ráðherrastólum en setan verður þeim ekki þægileg.

Miðflokkurinn er hástökkvari kosninganna, þrátt fyrir samstilltan hatursáróður vinstri flokkanna, og Sjálfstæðisflokkurinn er aftur orðinn kjölfesta íslenskra stjórnmála, enda gat Kristrún ekki leynt gremju sinni í sjónvarpinu um kosninganóttina … þessari vasklegu konu var greinilega illa brugðið enda á hún sinn hlut í afhroðinu.

Vorvindar glaðir, glettnir og hraðir, leika nú um gamla Frón.