Drenglyndi: Lögin um kynrænt sjálfræði ganga á mannréttindi kvenna og stúlkna

Fyrir sveitastjórnarkosningarnar sendi félagið Drenglyndi á Akureyri bréf með spurningum til bæjarfulltrúa Akureyrarbæjar um hin nýju kynjafræði sem aðallega lífsskoðunarfélagið Samtökin 78 standa fyrir. Þar er því haldið fram að kynin séu óteljandi og að börn geti fæðst í „röngum” líkama og svo framvegis. Þessi afbökun á vísindalegum staðreyndum hefur tekist með aðstoð vinstri stjórnmálamanna að troða sér inn í skólakerfið, þar sem hugmyndafræðilegri innrætingu er dælt inn í kornung saklaus börn og þau rugluð í ríminu fyrir mörgum árum fyrir kynþroskaskeið hvers einstaklings.

Gunnar Már Gunnarsson svaraði (sjá bréf hans neðar á síðunni) með eindæma útúrsnúningi og hroka, þótt langt væri leitað. Drenglyndi sendi frá sér eftirfarandi bréf, þar sem útúrsnúningi Gunnar Más er svarað:

„Þakka þér kærlega fyrir svarið, Gunnar.

Það gleður okkur að við erum sammála um margt. Þú talar um ærnar og hrútana, og veist að annað fer upp á hitt og engin önnur kyn spila fleiri hlutverk í því ferli; hvorki sauðstálp né kindkvár.

Einnig gerir þú þér grein fyrir að það sem við nefnum hlutina eru hugmyndir mannanna, og sjálfsagt að kenna börnum ólíkar hugmyndir. Á sama tíma er nauðsynlegt að kenna þeim muninn á hugmyndum og veruleika, en þar virðast málin flækjast þar sem mikið ósammæli er um ágæti þessara hugmynda og hvort þær séu í rauninni að bæta líðan barnanna eða hvort þær valdi þeim skaða.

Við fögnum því hugrekki sem þú sýnir með þinni rökhyggju. Við, foreldrar leik- og grunnskólabarna á Akureyri, skynjum þó á sama tíma að þér þykir ákall okkar til svara varla svaravert þar sem þú dansar í kringum annars skýrar og einfaldar spurningarnar.

Við spurðum hvort þú eða þinn flokkur væruð meðvituð um að með tilkomu laga um kynrænt sjálfræði væri gengið á mannréttindi kvenna og stúlkna. Þú segist ekki skilja tengslin þar á milli. Það er ótækt fyrir mann í bæjarstjórn. Helmingur íbúa sveitarfélagsins er kvenkyns og hefur með tilkomu þessara laga misst kynbundin réttindi sín.

Karlmaður sem segist vera kona fær aðgang að kvennaklefa Akureyrarlaugar

Leyfðu okkur að upplýsa þig, þetta er mikilvægt, og þetta vefst eflaust fyrir fleirum:

Meginefni laga um kynrænt sjálfræði er að veita fólki ótakmarkað frelsi til að skilgreina kyn sitt eftir eigin kynvitund. Kynvitund er hugtak sem lýsir huglægri afstöðu einstaklinga til eigin kyns. Með lögum um kynrænt sjálfræði var kynvitund, þ.e. upplifun fólks af eigin kyni, gefið meira vægi en líffræðilegt kyn. Segist karlmaður vera kona hlýtur hann lagalega stöðu konu og á rétt á allri þjónustu og réttindum sem konur hafa, t.d. aðgengi að kvennaklefum og kvennasalernum. Það eitt og sér ætti að hringja viðvörunarbjöllum þar sem rýmin voru aðskilin af góðri ástæðu er varðar öryggi, friðhelgi og blygðunarsemi stúlkna og kvenna. Hið upprunalega fyrirkomulag var gott á meðan það varði en hefur nú verið selt fyrir upplifun karlmanna sem telja sig konur.

Vert er að nefna að ekkert sakavottorð þarf til þess að breyta kynskráningu einstaklings.

Þ.a.l. hefði dæmdur, fúlskeggjaður glæpamaður með typpi og pung löglegt aðgengi að ungum stúlkum í kvennaklefa Akureyrarlaugar og eina vörn stúlknanna er von um að þeir mæti ekki í klefana. Réttur karla á upplifun er æðri blygðunarsemi og friðhelgi ungra stúlkna.

Lög um kynrænt sjálfræði hafa komið sérstaklega illa við heilbrigðisstarfsfólk, en læknum og heilbrigðisstarfsfólki ber lagaleg skylda til að framkvæma inngrip sem veikja og skemma fullkomlega heilbrigða líkama, þvert á samvisku, sérfræðiþekkingu, og svarinn eið; læknaeiðinn. Líffræði spyr ekki um upplifun eða skoðanir, sem kynrænt sjálfræði er. Starfsfólk heilbrigðisgeirans fæst ekki til að tjá sig – atvinna þess er í húfi!

Tungumálaverkfræðin: Konum breytt í leghafa, mæðrum í fæðingaforeldra

Tungumálinu hefur verið breytt til að rúma einstaklinga sem telja sig ekki falla undir líffræðilegan raunveruleika. Meðgönguvernd (áður mæðravernd), leghafar (áður konur), fæðingarforeldri (áður móðir), fólk með PCOS, fólk með endó, ófrískt fólk.

Konur, mæður, dætur: Þessi orð eru ekki svo innantóm að það sé í boði að rýra vægi þeirra fyrir betri upplifun karla.

Transkonur (karlmenn sem upplifa sig sem konur), hafa einnig fullt aðgengi að hópum og úrræðum fyrir kvenkyns þolendur ofbeldis. Kvennafangelsi, þar sem okkar viðkvæmustu konur dvelja standa nú líffræðilegum karlmönnum til boða. Glæpir transkvenna, sem skv. rannsóknum sýna sömu afbrota og ofbeldishegðun og karlmenn, færast yfir á tölfræði um glæpi kvenna.

Við gætum líka tekið umræðuna með áherslu á fjárveitingar á kostnað skattgreiðenda, en mögulega hefðu hópar sem berjast í bökkum fyrir langveik börn sín eða aldraða foreldra áhuga á því að vita að leghálslausar transkonur eiga nú rétt á niðurgreiddum leghálsskoðunum og ókeypis brjóstaaðgerðir, legnám, hormónameðferðir, kynfærauppbygging og talþjálfun stendur þessum einstaklingum til boða, svo eitthvað sé nefnt. Kostnaðurinn við að eyðileggja líkamlega heilbrigðar manneskjur með testesteróni eða estrógeni fellur einnig á kerfið.

Við spurðum hvort þú eða þinn flokkur treysti kennurum til að sinna fræðslu skv. Aðalnámskrá, um kynvitund, trans og fleira sem viðkemur hugmyndafræðinni? Einnig spurðum við hvort værir sammála embætti landlæknis um hvort intersex væri fæðingargalli þar sem námsefni grunnskólanna fjallar um intersex sem ákveðið kyn.

Ruglast á raunveruleika og hugmyndafræði

Við erum sammála um að það sé hægt að treysta kennurum til þess að fræða börnin, en okkur þykir ekki skrýtið að þegar fullorðnir menn í bæjarstjórn þykjast ekki sjá muninn á milli fæðingargalla og hugtaka, að kennarar: menntað fólk með gagnrýna hugsun sem veit að námsefni á fyrst og fremst að byggja á vísindalega gagnreyndum grunni, sé farið að ruglast á raunveruleika og hugmyndafræði.
Lofaðu okkur að styðja við þig þar sem þú hrasar í gegnum grýtt landslag rétttrúnaðar: Námsefni barna á að vera rétt og satt.

Í námsefni grunnskóla er talað um að börnum sé úthlutað kyn við fæðingu og að foreldrar geti sér til um kyn eigið barns. Þú svarar með neglu um hrúta og ær og talar um mikilvægi þess að börnum líði vel í eigin skinni. Mikilvægi þess er okkur sameiginlegt grundvallarmál. Það er frábært ef börnum líður betur í dag en í gær en okkur er þó einnig umhugað um morgundaginn. Þar sem þú ert í leiðtogastarfi fyrir bæinn, Gunnar, þá mælum við með að þú lítir örlítið fram á við, framhjá dyggðarflöggum og atkvæðum, og beint framan í þann raunveruleika sem verður ef við ljúgum að börnum og gefum í skyn að líkamar þeirra séu mögulega einhvers konar gallað púsluspil, ótengdir kyni þeirra, sem hægt sé að leiðrétta með því að skipta út bitum. Líkamleg og andleg heilsa barna okkar er ekki til sölu fyrir atkvæði í sveitarstjórnarkosningum.

Meðhöndlun byggð á meðvirkni leiðir aldrei til bata

Þér finnst spurning okkar um hvort hægt sé að breyta um líffræðilegt kyn óáhugaverð og berð fyrir þig að það snerti þig meira að lesa mýtur um háa sjálfsmorðstíðni samkynhneigðra og þeirra sem finnst þau lifa í röngu kyni. Þú bendir á að vanlíðan og skömm sé mikið samfélagsmein. Við minnum á að það er á okkar ábyrgð, fullorðna fólksins, að leysa slík vandamál. Vanlíðan og skömm, rétt eins og sjálfsmyndaróreiða eða kynami, eru huglæg vandamál sem þurfa viðeigandi meðhöndlun – ekki fána, fögnuð og heimtingu á meðvirkni samfélagsins. Skurðaðgerðir og hormónagjafir eru ekki viðeigandi lausnir fyrir börn sem upplifa sjálfsmyndaróreiðu. Meðhöndlun byggð á meðvirkni mun aldrei leiða til bata.

Við erum meðvituð um áhugaleysi þitt á kynleiðréttingahugmyndum sem bornar eru í börnin okkar í nafni fræðslu um fjölbreytileika, en okkur þykir nauðsynlegt að leiðrétta þann misskilning sem þú ert haldinn og vitnum í langtímarannsóknir sem ættu að snerta þig á sama hátt, þrátt fyrir að vera gagnreyndar. Ef þú skoðar t.a.m Cass skýrsluna þá sérðu að þegar leiðrétt er fyrir öðrum sálrænum vanda er ekki tölfræðilega marktækur munur á sjálfsvígstíðni ungmenna sem upplifa kynósamræmi og annarra ungmenna. Fólk sem fer í kynleiðréttingu er skv sænskri rannsókn aftur á móti 19 sinnum líklegra til að fremja sjálfsmorð.

Áhættan sem felst í því að halda sjálfsmorðsmýtunum lifandi er mikil. Öll umfjöllun um sjálfsvíg þar sem hún er tengd einni orsök, getur hreinlega ýtt undir fleiri sjálfsvíg, en ítrekað hafa aðilar á vegum Samtakana ‘78 stigið fram og fullyrt að líf barna með einhverskonar sjálfsmyndaróreiðu sé í húfi fái þau ekki kynstaðfestandi meðferð.

Við endum þetta á æðruleysisbæninni góðu, Gunnar, og óskum Akureyringum gleðilegra kosninga og velfarnaðar.

Guð – gef mér æðruleysi
til að sætta mig við það sem ég fæ ekki breytt,
kjark til að breyta því sem ég get breytt
og visku til að greina þar á milli.

Með kærri kveðju, f.h. Drenglyndis 

Ína Steinke og Víðir Orri Hauksson eru í félaginu Drenglyndi.

Svör Gunnars Más Gunnarssonar við spurningum Drenglyndis

Ég styð heilshugar frjálsar samræður. Mér finnst mikilvægt að vera hreinskilinn og stend ekki fyrir neinar skoðanir sem ég get ekki viðrað.

Þið senduð mér spurningar og hér eru mín svör.

SPURNING: Með tilkomu laga um kynrænt sjálfræði var gengið á mannréttindi kvenna og stúlkna. Ert þú eða þinn flokkur meðvitaður um það?

SVAR: Ég skil ekki tengslin. Eitt vil ég samt segja. Mamma studdi alla tíð sínar nýjustu kynsystur – svo ég er alinn upp við það. Það var mömmu held ég eðlislægt að sjá sig í liði með öllum þeim sem henni fannst hallað á í samfélaginu. Sjálf var hún nokkuð utan garðs sín síðustu ár. Átti í glímu við bæði geðröskun og alkóhólisma. Ég reyni því að temja mér umburðarlyndi í mínu lífi og vil sýna fólki virðingu.

SPURNING: Í Aðalnámskrá grunnskóla segir að kenna skuli um kynvitund, trans og fleira í þeim dúr er viðkemur trans hugmyndafræðinni. Treystir þú eða þinn flokkur kennurum til að sinna þeirri fræðslu?

SVAR: Ég treysti kennurum. Alls konar kennarar hafa kennt mér og seinna strákunum mínum. Sem betur fer ólíkir einstaklingar. Ég hef þó aldrei hitt fyrir þann kennara sem fór illa með traust mitt. Allt saman fagfólk sem gerði sitt besta til að undirbúa okkur feðgana undir lífið. Ég er þeim ævarandi þakklátur.

SPURNING: Í námsefni sem kennt er í grunnskólanum er talað um að börnum sé úthlutað kyni við fæðingu og að foreldrar geti sér til um kyn eigið barns. Auk þess hafa foreldrar leikskólabarna sagt frá, að um það sé rætt í leikskólum bæjarins við börn sem hafa ekki náð grunnskólaaldri. Ert þú sammála því eða þinn flokkur að börnum sé úthlutað kyni við fæðingu og að foreldrar geti sér til um kyn eigið barns?

SVAR: Við sem höfum verið í sveit vitum að þetta er ekki flókið þar. Við setjum ærnar undir hrútana og svo framvegis. Nú er ég hins vegar líka mannfræðingur og miðaldafræðingar. Þess vegna segi ég við þessu: Það þarf ekki að fara langt út fyrir túnfótinn til að sjá að við mannskepnan höfum haft allskonar hugmyndir um þessi mál (hvað viðkemur okkur sjálf, alla vega). Í gegnum söguna og þvert á menningarheima. Mér er eiginlega nokk sama hvernig við tölum um þessa hluti, svo lengi sem það er á hreinu að öllum börnum á að líða vel í eigin skinni.

SPURNING: Í námsefni í grunnskólanum er talað um intersex sem ákveðið kyn, en hér er um sjaldgæfan fæðingargalla að ræða samkvæmt embætti landlæknis. Ert þú eða flokkur þinn sammála embætti landlæknis? Ef nei, af hverju ekki?

SVAR: Við erum alltaf að flokka alla hluti. Til þess að koma röð og reglu á heiminn og til þess að öðlast betri skilning á honum og á okkur sjálfum. Fæðingargalli er hugtak. Eins og önnur hugtök, þá annað hvort hjálpar það okkur til að skilja heiminn, eða ekki. Auðveldar okkur að athafna okkur í þessum heimi, eða ekki. Ég hef enga skoðun á því hvort flokkunarkerfi landlæknis sé gagnlegt í annarri umræðu en læknisfræðilegri. Við fæðumst eins og við fæðumst, hugsum eins og við hugsum, og erum það sem við erum.

SPURNING: Mannkynið er annað tveggja, karl sem framleiðir sáðfrumur eða kona sem framleiðir eggfrumur. Ert þú eða þinn flokkur sammála því að kynin séu tvö? Ef ekki, hvað eru kynin mörg og hvaða kynfrumur framleiða þau kyn sem eru til umfram karl og konu?

SVAR: Einhvern tímann skrifaði erkiprakkarinn Össur Skarphéðinsson rit sem hann nefndi Urriðadans. Ástir og örlög stórurriðans í Þingvallavatni. Ábyggilega stórskemmtilegt verk en samt hef ég ekki lesið einn bókstaf í því. Ég er ósköp áhugalítill um líffræði og er ekki mikið að velta þeirri fræðigrein fyrir mér frá degi til dags.

SPURNING: Að breyta líffræðinni er raunverulegur ómöguleiki. Samt er því haldið fram að mannkynið geti breytt kyni sínu. Telur þú eða þinn flokkur að mannvera geti skipt um líffræðilegt kyn? Ef já, hvernig er það gert?

SVAR: Þetta finnst mér bara ekki áhugaverð spurning. Það snertir mig miklu meira þegar ég les um háa sjálfsvígstíðni samkynhneigðra sem og þeirra sem finnst þau lifa í röngu kyni. Vanlíðan og skömm eru mikið samfélagsmein. Það gleður mig ef einhverjum líður betur í dag heldur en í gær.

Ég vil annars enda þetta á Æðruleysisbæninni, sem stóð mömmu alltaf nærri:

Guð – gef mér æðruleysi
til að sætta mig við það sem ég fæ ekki breytt,
kjark til að breyta því sem ég get breytt
og visku til að greina þar á milli.

Þetta eru svörin mín.

Takk fyrir.

Gunnar Már Gunnarsson er bæjarfulltrúi á Akureyri og áhugamaður um mannréttindi og lýðræðislega umræðu