ESB er á leiðinni að regluvæða Internet svo mikið að lýðræðið hættir að vera til. Það segir Evrópuþingmaðurinn Christine Anderson í myndskeiði (sjá að neðan).
Þýska ESB-þingkonan Christine Anderson varar við því að ESB sé að eyðileggja frjálst Internet.
Núna á einnig að innleiða aldursstaðfestingu á netinu.
Skref fyrir skref verður ástandið bara verra. Christine segir:
„Fyrst komu stafrænu þjónustulögin Digital Services Act, DSA, síðan tillögur um spjalleftirlitið Chat Control og núna kemur kerfi fyrir aldursstaðfestingu og krafa um auðkenningu fyrir samfélagsmiðla. Opinberlega er sagt að þetta eigi að vernda börnin, lýðræðið og stöðva falsupplýsingar. En svona hljómar það alltaf: Látið okkur fá meiri stjórn og við munum vernda ykkur. Það er lygi.“
Einu sinni var Internetið einn frjálsasti vettvangur fólks. En nú er verið að þurrka það út. Anderson heldur áfram:
„Nú er ESB að breyta því í vettvang sem byggir á leyfum. – Frelsi þýðir opið samfélag, frelsi þýðir umburðarlyndi gagnvart áhættu og lýðræði þýðir að treysta borgurunum meira en skrifræðinu. Ef við fórnum þessu opinbera torgi í nafni „öryggis,“ þá munum við komast að því að við höfum verndað lýðræðið svo mikið að það hættir einfaldlega og algjörlega að vera til. Látið það ekki gerast. Látið ríkisstjórnirnar ekki blekkja ykkur til að halda að þær vilji ykkur vel. Berjist gegn þessu af alefli. Þetta snýst um frelsi ykkar. Þetta snýst um grundvallarréttindi ykkar.“
