Aðvörun til Íslendinga: Látið ekki ESB plata ykkur!

Þýska ESB-þingkonan Christine Margarete Anderson, sem er fulltrúi Valkosts fyrir Þýskaland sendir Íslendingum viðvörun varðandi ESB-kosninguna í haust. Arnar Þór Jónsson, formaður Lýðræðisflokksins, birti skilaboð hennar til íslensku þjóðarinnar á Facebooksíðu sinni. Christine lýsir ESB sem reglugerðar- og skriffinnskuhelvíti og biður okkur um að forða okkur frá krumlum ESB sem er búið að leggja gildru fyrir þjóðina í komandi kosningu.

ESB og fimmta herdeild þeirra innanlands segja að ESB-umsókn Íslands sé virk. Samt sem áður segja sömu aðilar að ekki sé verið að kjósa um aðildarferli fyrir inngöngu Íslands í Evrópusambandið. Aðeins um tækifæri til að „kíkja í pakkann og sjá hvaða samning sé hægt að fá.” Málið er að þegar samningurinn verður skrifaður, þá munu kratar og viðreisn á þingi skrifa undir hann og hlaupa með til Bessastaða með breytingu á stjórnarskránni. Síðan verður boðað til alþingiskosninga og samningurinn öðlast gildi. Þá verður of seint fyrir þjóðina að grípa í taumana.

Þetta er í annað skiptið í sögu ESB sem umsóknarríki hegðar sér svona. Í fyrra skiptið var það einnig Ísland. Af öllum ESB kosningum sem haldnar hafa verið varðandi inngöngu ríkja í sambandið hefur ekkert ríki, ekki eitt einasta, haft atkvæðagreiðslu um að kíkja í pakkann. Íslendingar koma út sem smákrakki sem hvorki hefur þroska, aldur né greindavísitölu til að skilja að ESB setur reglurnar. Það er ekki ESB sem er að ganga í Ísland. Það er Ísland sem er að ganga í ESB.

Íslendingar skera sig því gjörsamlega frá öðrum í heimsku. Eða réttara sagt, íslenskir kratar og viðreisnar ESB hallelúja kórinn sem er þjóðinni til minnkunnar og eilíflegrar skammar. – Ekki almenningur. Ekki bændur eða sjómenn. Ekki maðurinn á götunni.

Hér að neðan má hlusta á boðskap Christine Anderson sem er snarað yfir á íslensku í lauslegri þýðingu þar fyrir neðan:

– Halló, kæru Íslendingar.

Mér hefur verið sagt að þið séuð að velta því fyrir ykkur að ganga með í Evrópusambandið.

Leyfið mér að gefa ykkur eitt ráð frá einhverjum sem hefur verið inni í þessu bókstaflega reglugerðar- og skriffinskuhelvíti.

Ég kalla þetta stærsta geðveikrahæli heims.

Eitt ráð: ef ESB reynir að lokka ykkur inn, reyna að gabba ykkur inn — hlaupið í burtu.

Hlaupið eins langt og eins hratt og þið getið.

Þetta er mitt ráð til ykkar, mín einlæga skoðun.

Auðvitað er þetta ykkar ákvörðun. Þið eruð fullvalda þjóð.

Þið ákveðið sjálf hvað þið teljið ykkur fyrir bestu.

Ég segi bara: hlaupið. Hlaupið, hlaupið, hlaupið.

Bless.