ESB er í dag stjórnað af „alþjóðlegri valdastétt“ sem vill stýra Evrópu í eina pólitíska átt. Þess vegna er ESB á barmi hruns. Þetta fullyrðir Douglas Macgregor í nýju viðtali (sjá YouTube að neðan). Hann spáir því að glóbaliztunum muni mistakast. Samkvæmt Macgregor verður framtíðin töluvert öðruvísi en við höldum í dag.
Bandaríski hernaðarsérfræðingurinn Douglas Macgregor talar um ESB í viðtali við ITM Trading og hvers vegna Evrópusambandið virkar ekki lengur, hvers vegna það er að hrynja. Að sögn Macgregor virkaði ESB vel þegar það einbeitti sér eingöngu að hagfræði og viðskiptum. Þá tókst það. En svo gerðist eitthvað.
ESB átti að verða stjórnarráð aðildarríkjanna
Það hefur átt sér stað „umbreyting í smáskrefum“ útskýrir hann, þar sem „alþjóðastéttin“ hefur tekið völdin. Það er form „nútíma bolsévisma“ fullyrðir Macgregor. Hann segir:
„Þeir ákváðu að breyta ESB í stjórnarráð.“
Fólk er eins og skiptitau
Ókjörnir embættismenn ESB fóru að stjórna lögum um alla Evrópu. Þeir reyndu að þvinga fjölþættri Evrópu í eina pólitíska átt. En það gengur ekki svo vel. Viðnámið eykst stöðugt. Macgregor segir:
„Flestir af þessari glóbalísku elítu eru marxistar. Þeim finnst fólk ekki skipta máli. Fyrir þá er fólk eins og skiptitvarningur.“
„Í síðastu örvæntingarfullri tilraun reynir þessi alþjóða valdastétt, – sem hefur mistekist svo illa pólitískt í Evrópu – að gera allt sem í hennar valdi stendur til að mála upp þessa tilbúnu ógn frá Rússlandi. – Rússar hafa engan áhuga á að ráðast á Vestur- eða Austur-Evrópu.“
Macgregor telur að glóbaliztunum muni ekki takast. Þeir sem eru stjórnmálamenn í dag hverfa af sviðinu innan fárra ára. Það gæti jafnvel endað með byltingu og hann telur að Frakkar muni fyrstir allra rísa upp:
„Það er hættuleg tilraun að framlengja þessar viðvarandi hörmungar til þess eins að halda völdum. Það mun ekki virka. Framtíðin verður öðruvísi en við höldum núna. Við erum aðeins farin að sjá skína í hana.“
Ummæli Douglas Macgregors um Evrópusambandið hefjast á mínútu 25:46