Loftslagsráðstefnan breyttist í hraðbraut til helvítis

Mikill eldur hefur kviknað á svæði COP30 loftslagsráðstefnunnar í Belém í Brasilíu. Ráðstefnubyggingar hafa verið rýmdar, þátttakendur hafa hlaupið um í ótta á svæðinu. Brasilísk yfirvöld segja enn engar tilkynningar um meiðsli á fólki.

Samkvæmt sænska Aftonbladet kviknaði eldur inni á ráðstefnusvæðinu þar sem COP30 loftslagsráðstefnan fer fram.

„Það hefur verið eldur inni á svæðinu og fólk er að hlaupa í ótta“ segir Petter Larsson, fréttaritari Aftonbladet, sem er á staðnum.

SVT lýsir ástandinu sem ringulreið og ótta og að fólk hlaupi í allar áttir.

Myndbönd af vettvangi sýna gríðarlega elda og þykkan reyk sem dreifist hratt yfir tjaldhluta byggingarinnar. Fólk inni í byggingunni reynir að slökkva eldinn með handslökkvitækjum, en slökkvilið, lögregla og sjúkrabílar eru kölluð á vettvang. Samkvæmt Reuters segir ferðamálaráðherra landsins að enginn hafi slasast.

Margir umhverfissinnar og stjórnmálamenn sækja fundinn. Sænska þingkonan Emma Wiesner segir við Aftonbladet að hún hafi ekki getað yfirgefið svæðið og hafi í staðinn verið haldið inni. Hún segir ástandið afar erfitt.

„Við vorum beðin um að yfirgefa svæðið. En byggingin sem ég er í hefur enga útgönguleið. Þess vegna höfum við verið flutt á stað sem tengist tjaldinu þar sem eldurinn er.“

Annika Christell hjá sænsku Umhverfisstofnuninni, sem einnig er formaður sérfræðingahóps ESB um losunarlækkun, segir við Aftonbladet að hún hafi verið á leiðinni inn á fund þegar „Dani öskraði á okkur að allt væri í björtu báli og að við ættum að fara út“.

Hún segir að hún hafi komist út gegnum tjaldsvæðið.

ESB-þingmaðurinn Heléne Fritzon var í löngum aðal gangi COP30-byggingarinnar þegar ótti braust út. Hún segir að hugsunin um mögulega árás hafi verið til staðar þegar viðvörunarkerfið fór af stað.

COP30-fundurinn í Belém á að standa til föstudags en óvíst um áframhaldið.

Fara efst á síðu