Það var stórskemmtilegt og fróðlegt að ræða við Karl Gunnarsson, flugstjóra, sem býr í Ottawa í Kanada. Hann segir frá nýafstöðnum kosningum í Kanada, baráttu íhaldsmanna og frjálslyndra um hylli kjósenda og öðruvísi kosningafyrirkomulag sem leiddi m.a. til þess að foringi íhaldsmanna, Pierre Poilievre, tapaði þingsæti og komst ekki inn á þing. Samt sem áður stórbætti íhaldsflokkurinn fylgið og fékk 25 fleiri þingmenn en í síðustu kosningum.

Svo virðist sem að í ýmsum kjördæmum geti einstaklingar utan flokka boðið sig fram eða flokksbrot sem ekki finnast annars staðar. Þetta olli að því virðist meira en metra löngum atkvæðaseðli í kjördæmi Poilievre og sagði Karl Gunnarsson (á mynd t.v.) ítrekað að margir Kanadmenn töldu að vegna þess hafi eldra fólkið átt erfitt með að finna Poilievre á atkvæðaseðlinum.
Einnig eru í gangi alls konar sögur um horfna kjörkassa með atkvæðaseðlum í kjördæmum sem íhaldsmenn hafa fylgi.
Íhaldsflokkurinn bætti við sig 25 þingmönnum

Eins og sjá má á skjáskotinu að ofan hafði Íhaldsflokkurinn 119 þingmenn áður og bætir við sig 25 og fær 144 þingmenn eftir kosningarnar. Þetta er stórsigur flokksins sem hefur núna 42% fylgi og er þétt á hælum Frjálslynda flokksins sem bætir einnig við sig 9 þingmönnum og fer úr 160 þingmönnum í 169. Aðrir flokkar töpuðu, mest töpuðu Nýju demókratarnir sem missa 18 þingmenn og fara úr 25 þingsætum niður í 7, þar á eftir Bloc Québécois sem tapaði 10 þingsætum og fer úr 32 niður í 22 þingmenn og svo Græningjar sem töpuðu 50% af þingliði sínu og fara úr tveimur í 1 þingsæti. Í fulltrúadeild Kanadaþings eru 343 þingmenn og 172 þingmenn þarf til að fá meirihluta.
Aðrir flokkar eru 11 talsins og þar má finna flokka eins og Framtíðsflokkinn, Miðflokkinn, Dýraverndunarflokkinn, Kristna flokkinn, Kommúnistaflokkinn, Frelsisflokkinn, Maríjúanaflokkinn, Marx-lenínistaflokkinn, Alþýðuflokkinn, Rhinoceros sem virðist vera brandaraflokkur og svo Sameinaða flokkinn. Þessir flokkar mega bjóða fram í þingkosningum ef þeir teljast gjaldgengir flokkar á alríkisstigi en til þess þurfa þeir að hafa framboð í alríkiskosningum eða aukakosningum. Eins og er eru engir þessara flokka gjaldgengir flokkar á alríkisstigi.

Pierre Poilievre, foringi Íhaldsflokksins, komst ekki inn á þing
Karl Gunnarsson ræddi það furðulega sem hafði gerst að í heimakjördæmi foringja Íhaldsflokksins, þá tapaði Pierre Poilievre, þingsæti og náði ekki kjöri til þings. Karl sagði:
„Kjörseðillinn í mínu kjördæmi, sem er hluti Ottowa þar sem við eigum heima, var með fimm valkosti. Ég gat valið um Íhaldsmenn eða Frjálslynda, Nýja demókrataflokkinn, Græna og Québécois-blokkina. Sem sagt fimm í allt…… Þetta voru bara svindlkosningar vegna þess að þeir sem kusu í kjördæmi Pierre Poilievre í útjaðri Ottowa, fengu kosningaseðil með yfir 20 frambjóðendum og flestir voru óháðir eða án flokks. Þannig að þegar fólk kaus í þessu kjördæmi með tugum valkosta á atkvæðaseðlinum með alls konar nöfnum, þá átti fólk í vandræðum með að finna Íhaldsflokkinn. Það er bannað að taka myndir af atkvæðaseðlinum en einhver gerði það nú samt eins og sjá má hér að neðan.“

Karl Gunnarsson segir Kanadamönnum mikið niðri fyrir vegna málsins og býst við að sjóði upp úr bráðlega. Skoðanakannanir sýndu skyndilega breytingu á fylgi Frjálslyndra sem voru langt á eftir Íhaldsflokknum og má það rekja til tolla Donald Trumps Bandaríkjaforseta. Karl segir að Kanadamenn munu aldrei sætta sig við slíkar aðgerðir en hins vegar ef Trump sendi herinn til að stugga Rússum og Kínverjum á braut í nyrstu héruðunum yrði Trump gerður að þjóðhetju í Kanada.

Eins og sjá má á þessari mynd af skoðanakönnunum, þá breyttist staða frjálslyndra skyndilega og þeir juku fylgið hratt og mikið skömmu fyrir kosningarnar.
Mikil spilling er í Kanada eins og komið hefur fram í fyrri viðtölum við Karl en Kínverjar eru margir og eiturlyfjaframleiðsla í gangi sem ýtti undir kröfu Bandaríkjanna um hertari landamæragæslu Kanadamanna hjá sér. Karl segir Kínverja hafa mikil ítök í Kanada.
Fjöldamorð á Lapu-Lapu hátíð fólks frá Filippseyjum
Nýlegt fjöldamorð í Vancouver var einnig til umræðu en lögreglan í Kanada neitar að um hryðjuverk sé að ræða. Filippínskur geðveikur maður keyrði á bíl á útihátíð innflytjenda frá Filippseyjum, Lapu lapu og myrti 11 manns og særði 24 aðra. Mikil sorg og reiði er eftir atburðinn og margir eiga sárt um að binda. Þessi drápsaðferð er orðin algeng í dag í Evrópu og Bandaríkjunum. Hugurinn leitar til vígamanna íslam en einn slíkur sem var ólöglegur innflytjandi í Svíþjóð drap fimm manns og særði enn fleiri með flutningabíl. Nýleg ódæði í Þýskalandi og víðar eru einnig nærtæk.
Frá Vancouver fór leiðin til Svíþjóðar og Íslands en íslensk stjórnvöld apa allt það versta sem heimsk sænsk stjórnvöld bjóða upp á og hefur leitt til slæms ástands á Íslandi varðandi fíkniefni, erlenda glæpahópa, hópnauðganir og kaffistofu leigubílstjóra sem breytt hefur verið í múslímskt bænahús. Vantar bara skot- og sprengjuárásir upp á svo ímynd sænsku paradísarinnar verði fullkomnuð á Íslandi.
Hlusta má á viðtalið hér að neðan: