Jólagjöfin sem gefur og gefur…

Áskrift að Tilfallandi hlaðvarpi Páls Vilhjálmssonar

Veistu ekki hvað þú átt að gefa þeim sem allt eiga í jólagjöf? Gefðu þeim áskrift að Tilfallandi hlaðvarpi vinsælasta bloggara þjóðarinnar, Páls Vilhjálmssonar:

Tilfallandi sat þingflokksfundi Alþýðubandalagsins í formennskutíð Ólafs Ragnars Grímssonar. Í þingflokksherbergi Alþýðubandalagsins rétt undir rjáfri þinghússins var símklefi ætlaður þingmönnum sem þurftu næði að tala við baklandið sitt án þess að víkja af þingflokksfundi. Eins og gefur að skilja var þetta fyrir daga farsíma.

Á þessum tíma vísuðu þingmenn oft í baklandið sitt þegar þeir ræddu af afstöðu sína til pólitískra álitamála. Ekki var óalgengt að þingmenn sögðu ,,ég heyri úr mínu baklandi” þetta eða hitt álitið á tilteknu máli. Oft var drýgindalegur tónn í viðkomandi þingmanni, einkum ef hann var fyrsti þingmaður kjördæmisins. Baklandi fylgdi pólitísk þyngd. Nú heyrist sjaldnast tekið svona til orða. Bakland þingmanna og stjórnmálaflokka er meira og minna opinber vettvangur á tímum samfélagsmiðla. Hvískur í símklefa í þingflokksherbergi er sögulegur fróðleikur.

Fylgi stjórnmálaflokka, eins og það mælist skoðanakönnunum, er baklandið sem skiptir máli. Tilfallandi hlaðvarp ræðir baklandið og hamingjuskiptin sem orðið hafa á Sjálfstæðisflokknum og Miðflokknum. Tilfallandi hlaðvarp er djúpmiðill bloggsins, segir það sem ekki er skrifað. Hlaðvarpið fæst í áskrift, sjá hlekk að neðan.

Tilfallandi hlaðvarp.

Fara efst á síðu