Gyðingar lúbarðir og limlestir í Amsterdam

„Við erum orðnir að Gaza Evrópu!“ sagði hollenski stjórnmálamaðurinn Geert Wilders eftir barsmíðar á gyðingum sem færa hugann að tímum nazismans og Hitlers. Geert Wilders er leiðtogi stærsta stjórnmálaflokks í Hollandi, Frelsisflokksins, PVV. Wilders fer fram á afsögn borgarstjóra Amsterdam og rannsókn á því, hvers vegna yfirvöldum tókst ekki að verja gyðinga frá því að verða lúbarðir af ofbeldisfullum stuðningsmönnum Hamas og öðrum gyðingahöturum. Margir gyðingar særðust, a.m.k. fimm eru á sjúkrahúsi og yfir 60 ofbeldisseggir hafa verið handteknir. Lesendur eru varaðir við óhugnanlegum myndböndum af ofbeldinu hér að neðan.

Forsætisráðherra Ísraels Benjamin Netanyahu fordæmir gyðingaárásirnar með skörpum orðum og sendi flugvélar til að sækja landsmenn sína heim frá Hollandi. Ríkisstjórn Hollands rannsakar hvort henni hafi yfirsést viðvaranir frá Ísrael fyrir fótboltaleikinn og David van Weel, dómsmálaráðherra Hollands, tilkynnti þinginu bréfleiðis um málið. Dick Schoof, forsætisráðherra Hollands lýsti „skelfingu sinni á andgyðinglegum árásum á meðborgara Ísrael.“ Hann lofaði Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísrael, að „óeirðaseggirnir verði fundnir og þeir sóttir til saka.“

Geert Wilders gagnrýndi skort á lögregluvernd og krafðist ábyrgðar af hálfu borgaryfirvalda og varaði við því að hann myndi ekki þola slíkt ofbeldi undir neinum kringumstæðum. Hann skrifaði á X:

„Það er ekki nóg að fordæma gyðingaveiðar í Amsterdam. Þeir sem stunda þær verða að fara úr landi. Ég hef varað við auknu gyðingahatri í Hollandi í meira en 20 ár, vegna áframhaldandi fjöldainnflutnings og íslamsvæðingar landsins okkar…..Af hverju voru ekki nægjanlega margir lögreglumenn á staðnum? Hvers vegna var ekki búið að sjá þetta fyrir? Af hverju er þessi skríll ekki sendur úr landi?“

Nánar má lesa um málið á SVT og New York Post

Hér að neðan má sjá myndbönd frá gyðingaárásunum. Varað er við myndböndunum og viðkvæmum ráðlegt að horfa ekki á þau:

Fara efst á síðu