Trump virðist vera orðinn samnefnari fjölda manns í ábyrgðarstöðum sem afsökun á eigin getuleysi. Reynt er að fela eigin mistök á bak við nafnið Trump. Washington Post á í efnahagsörðugleikum vegna uppsagna áskrifenda og hefur fjölmiðillinn gripið til þess ráðs að segja upp starfsfólki. Viðbrögð vinstri manna sýna að blaðamannastéttin skilur ekki, hvað er að gerast. Marty Baron, fv. ritstjóri Washington Post segir í viðtali, að „vandamál blaðsins sé að þeir hafi einfaldlega ekki verið nógu harðir við Trump.“
Blaðamaðurinn Mike LaChance sem hefur skrifað meðal annars fyrir Daily Caller, Breitbart, the Gateway Pundit, the Center for Security Policy, the Washington Free Bacon of fleiri miðla skrifar að The Washington Post hafi á síðasta áratug hætt að vera frjálslynt og opnað blaðið fyrir öllum kjaftasögum um Donald Trump og kynnt allt Trump hatrið sem þeir gátu burtséð frá því hví hversu fáránlegt það var. Með því hafi fjölmiðillinn eyðilagt eigið orðspor og fjöldi áskrifenda yfirgefið blaðið og sótt í aðra miðla.
Nýlega tók mrc NewsBusters viðtal við Marty Baron fyrrverandi ritstjóra Washington Post (sjá X að neðan). Í viðtalinu kemur fram að Baron telur að flótti áskrifenda stafi af því að blaðið hafi ekki gengið nægjanlega hart fram gegn Donald Trump. Hann ræddi um Jeff Bezos eiganda blaðsins og sagði:
„Og svo held ég að hann hafi í raun orðið – tekið algera beygju eftir að útlit var fyrir að Trump yrði kjörinn forseti aftur. Það var árið 2024. Ellefu dögum fyrir forsetakosningarnar árið 2024, tóku þeir út þeir ritstjórnargrein sem studdi Kamala Harris. Hann sagði að blaðið myndi aldrei aftur styðja forsetaframboð.
Þá sögðu hundruð þúsunda áskrifenda upp áskriftinni sem jók mjög á fjárhagsvandann og gerði hann enn verri. Í kjölfarið gerði hann alls konar hluti sem gerðu illt verra, kom fram á svið með Donald Trump við innsetningarathöfnina, keypti svo kallaða heimildarmynd Melaniu fyrir óheyrilegt verð, keypti réttinn – Amazon keypti líka réttinn að The Apprentice….
Síðan breytti hann umræðusíðunum, þannig að þar eru í raun engir raunverulegir vinstri sinnaðir dálkahöfundar. Og þeir eru mjög hallir undir Trump. Ég held að þá skorti siðferðilegan kjark.
Allt þetta hefur bolað áskrifendum burtu. Og fyrir hvern áskrifanda sem þeir fá inn um aðaldyrnar vegna hágæða fréttaflutnings, held ég að þeir missi kannski tvo áskrifendur bakdyramegin. Ég þekki ekki tölurnar nákvæmlega, en þeir hafa greinilega verið að missa marga áskrifendur.“
ON PBS @NewsHour, former WashPost editor Marty Baron blamed the Post's job cuts on all their pro-Trump mistakes. They failed to endorse Kamala, they funded a Melania documentary. Bezos was on stage at Trump's inauguration. So their whole business model is keeping leftists happy. pic.twitter.com/6L9i1NC8bD
— Tim Graham (@TimJGraham) February 6, 2026
