Enginn þarf að draga í efa hið beina samband á milli reiði Ingu Sælands vegna týnds skópars barnabarnsins og uppsagnar Ársæls Guðmundssonar, skólameistara Borgarholtsskóla. Þessi valdníðsla er bara nýjasta dæmi vók fasismans á Íslandi. Sérstaklega nánasarlegt, þar sem svo stuttur tími var í eftirlaunatíma skólameistarans. Mörg önnur dæmi og þekktari eru til eins og uppsögn Úlfars Lúðvíkssonar fv. lögreglustjóra á Suðurnesjum, brottrekstur Helga Más Gunnarssonar vararíkissaksóknara og brottrekstur Páls Vilhjálmssonar kennara frá störfum svo fá þekkt dæmi séu tekin.
Fasismi fólks Flokksins er einungis lítill hluti vók fasismans á Íslandi sem stjórnmálamenn nota sem stjórntæki með beinum og óbeinum hótunum til starfsmanna ríkis og bæja, fyrirtækja og almennings til að þvinga fólk til hlýðni við stefnu og skoðanir sínar. Það er hægt að kúga fólk andlega sem er gert 24 tíma á sólarhring, þá sjást engin merki um líkamlegar meiðingar. Mikilvægasta reglan númer eitt er að kyssa á vönd kúgarans og hylla hina einu sönnu pólitík. Rétttrúnaðurinn gengur framar öllu öðru.
RÚV heldur utan um skoðanakúgunina í heilögu bandalagi við spillta stjórnmálamenn og eftirlifandi útrásarvíkinga. Reglan er sú að ef stefnu yfirvalda er mótmælt eða gagnrýnt, þá er viðkomandi útbíaður illum nöfnum, smáður og rændur möguleikum á lífsafkomu. Þetta þjónar einnig með góðum árangri sem skilaboð til almennings að halda sér á mottunni og ekki segja skoðanir sínar upphátt fyrir utan veggi heimilisins.
Goggunarröðin á Íslandi er: Valdhafar númer 1, stjórnendur fyrirtækja númer 2 og almenningur þar á eftir. Fjölmiðlar sem vernda vók fasismann og eru hluti af honum eru ásamt spilltum stjórnmálamönnum stærsta hætta almennings á Íslandi og Vesturlöndum. Svikamál vók fasismans eru: Farsóttir, innflytjendamálin, loftslagsmálin, kynjamálin og Úkraínustríðið.
RÚV er helsta verkfærið til að innleiða og halda uppi vók fasismanum á Íslandi í góðu samstarfi við stjórnmálamenn. Búið er að slá sundur gagnkvæma virðingu einstaklinga á milli og fólki og fjölskyldum sundrað. Íslendingar hafa sýnt undraverðan árangur í sjálfritskoðun, þar sem fólk er virkt í að útiloka og leggja þá einstaklinga í einelti sem víkja frá lygum RÚV og gefa aðra mynd en þá einu opinberu og réttu um nýju fötin keisarans. Fyrir utan þessa daglegu ritskoðun og kúgun, sem allir vita en enginn má tala um, hleypur síðan skapið í skessurnar eins og til dæmis Ingu Sæland. Hún er svo barnaleg í nýju hamingju sinni að hafa völd að hún getur ekki á sér setið að sjá hvað hún getur gert.
Með ritskoðunarætlun ESB mun fasisminn síðan blómstra út og frjáls umræða drepin. Það er sú vegferð sem landsmenn eru á með valkyrjurnar í bílstjórasætinu.
