Elon Musk: Stórnmálamenn eru peð sem aðrir stjórna

Flestir stjórnmálamenn í dag eru bara leikarar og þeir sem skrifa handrit og leikstýra eru allt aðrir einstaklingar í bakgrunninum fullyrðir Elon Musk á X (sjá að neðan).

Elon Musk fullyrðir að stjórnmálamenn ráði ekki málunum í dag.

Ekki flestir þeirra allavega. Hann kallar þá „leikara.“ Mætti alveg eins nota orðið peð.

Tucker gerir að umtalsefni í viðtali við Evu Vlaardingerbroek, að enginn geti undir neinum kringumstæðum sannfært hann um að breski forsætisráðherrann Keir Starmer taki sjálfstæðar ákvarðanir um framtíð Bretlands. Slíkir stjórnmálamenn taka við „skipunum“ annars staðar frá, telur Tucker.

Elon Musk skrifar:

„Flestir stjórnmálamenn eru bara leikarar á sviðinu. Þú sérð ekki handritshöfundana, leikstjórana og framleiðendurna sem stjórna þeim.“

Fara efst á síðu