Það er ekki hægt að sigra Rússland fullyrðir rússneski sendiherrann í Svíþjóð Sergey Belyaev í nýju viðtali á Swebbtv. Og ef stjórnmálamenn í Evrópu stela virkilega kyrrsettum rússneskum eignum, þá mun Evrópa „tapa miklum peningum“ segir sendiherrann.
Mikael Willgert ræðir Úkraínustríðið við rússneska sendiherrann Sergey Belyaev og tilraunir ESB að frysta og stela rússneskum eignum. Um er að ræða meira en 200 milljarða dollara sem að mestu leyti er haldið í Belgíu. Sergey Belyaev segir:
„Í fyrsta lagi er það beinlínis ólöglegt þegar þú tekur peninga einhvers annars. Ef þú krefst svo kallaðra skaðabótagreiðslna þýðir það venjulega að þú hefur unnið hernaðarsigur og að hinn aðilinn sé gjörsamlega brotinn. Það er enginn hernaðarsigur og ég geri ráð fyrir að það verði enginn slíkur sigur í framtíðinni. Því það er ekki hægt að sigra kjarnorkustórveldi. Það er ekki hægt að sigra Rússland, það er ekki hægt að sigra kjarnorkustórveldi. Við skulum muna eftir því.“
„Samtímis þá ber að hafa í huga að það eru líka evrópskar eignir í Rússlandi. Þær eru líka frystar. Og ég er alveg viss um að við munum beita meginreglu gagnkvæmni varðandi þessa fjármuni.“
Það eru álíka upphæðir og rússnesku eignirnar sem ESB hefur fryst. Sendiherrann segir:
„Ef rússneskum fjármunum verður skilað til Rússlands, þá verður evrópskum fjármunum skilað til Evrópubúa. Þar að auki fylgjast margir fjárfestar utan Evrópu með aðstæðum. Ef evrópsk yfirvöld leggja hald á rússneskar eignir munu þessir fjárfestar skilja að evrópski markaðurinn er ekki öruggur staður fyrir þá.“
„Evrópa mun tapa miklum peningum, til dæmis frá arabískum löndum.“
Sjá má viðtalið við sendiherra Rússlands í Svíþjóð hér að neðan:
