Unglingur undir 15 ára aldri er grunaður um að hafa framið tvær sprengjuárásir í fjölbýlishúsi í Malmö. Þrátt fyrir ótvíræðan grun var hvorki hægt að handtaka hann né taka hann í gæsluvarðhald – í staðinn bauð lögreglan honum far heim.
Á miðvikudagskvöldið sprungu tvær sprengjur í Bellevuegården í Malmö sem er innflytjendahverfi með mörg vandamál. Sprengjurnar ollu miklu eignatjóni – útihurð og gluggar brotnuðu og framhliðin á húsinu var alvarlega sköðuð eftir höggbylgjuna.
Stuttu eftir atvikið fann lögreglan ungling nálægt vettvangi. Samkvæmt yfirvöldum er hann undir 15 ára aldri og er grunaður um að hafa framið árásirnar.
„Við höfum talað við hann um sprengjuárásirnar en það er ekki hægt að handtaka hann vegna aldurs” sagði talsmaður lögreglunnar í athugasemd við Sydsvenskan.
Félagsmálastofnun hafði ekki tíma
Ungi maðurinn hefur stöðu aðalgrunaðs og niðurstöður á vettvangi bentu til þess að sprengjuhleðslurnar hafi verið settar á tvo mismunandi staði við innganginn.
Þrátt fyrir þetta, þá var ekki hægt að grípa til neinna þvingunaraðgerða í venjulegum skilningi gegn grunaða manninum. Þegar lögreglan reyndi að fá félagsþjónustuna til að taka við ábyrgðinni á drengnum, þá komu upp vandamál.
„Við höfðum samband við félagsþjónustuna en hún gat ekki tekið á móti honum” útskýrir lögreglan. Niðurstaðan varð sú að lögreglan keyrði hinn grunaða barnahermann heim til forráðamanns síns á Norðvestur-Skáni.
Fleiri ódæðismenn
Í rannsókninni sem nú stendur yfir hefur lögreglan einnig handtekið fullorðinn mann á aldrinum 25 ára, grunaðan um að hafa aðstoðað við alvarleg almannaspjöll. Rannsóknin bendir til þess að unglingurinn hafi ekki gert það sjálfur.
Að lögreglan tekur ekki einstakling fastan sem grunaður er um alvarlega sprengjuárás byggir á þeirri sérstöku réttarstöðu sem gildir um fólk yngra en 15 ára sem brýtur lögin. Ríkisstjórnin og Svíþjóðardemókratar hafa lagt fram frumvarp um að lækka sakaaldurinn niður í 13 ár fyrir ákveðin alvarleg brot.
