Áttatíu ára tengsl Kennedy & demókrata rofin …

Robert Kennedy jr. er að draga til baka forsetaframboð sitt í tíu lykilfylkjum þar sem baráttan er hörðust og lýsir yfir stuðningi við repúblikann Donald Trump í Arizona, Georgíu, Michigan, Nevada, Norður Karólínu, Pennsylvaníu og Wisconsin. Þetta gerði hann í yfirlýsingu í Arizona og rauf þar með 80 ára tengsl Kennedya við Demókrataflokkinn. Faðir Robert Kennedy jr. var skotinn til bana í LA Kaliforníu 1968 og föðurbróðir John F. Kennedy í Dallas, Texas1963. Kennedy jr. líkt og faðir sinn og föðurbróðir er einlægur friðarsinni. John F. Kennedy varð fulltrúaþingmaður 1947, öldungaþingmaður 1953 og forseti 1961.

Sakar demókrata um að vopnvæða dómskerfið

Kennedy jr. sakar fjölmiðla um ritskoðun, árásir á frjálst lýðræðissamfélag og samstilla strengi um að þagga rödd sína í kosningabaráttunni. Hann sakar demókrata um að vopnavæða dómskerfið með falsmálaferlum bæði gegn sér og Donaldi Trump ásamt misnota löggæslu. Daginn eftir að Donald Trump var sýnt banatilræði í Butler Pennsylvaníu hitti Kennedy Trump 45. forseta Bandaríkjanna. Kennedy jr. sakar sakar Biden um að hafa í samvinnu við fjöl- og samfélagsmiðla þaggað rödd sína í prófkjörum demókrata og nú forsetaframboðinu þar sem hann hefði hæst mælst 20+. Hann nefndi sérstaklega NBC, ABC og CNN. Kamila Harris hafnaði fundum með honum.

Kennedy jr. sakar Biden um Úkraínustríðið …

Kennedy jr. sakar demókrata um að bera ábyrgð á Endalausum styrjöldum og sakar Biden-stjórnina um að vopnvæða alríkisvaldið; CIA, FBI og dómskerfið. Kennedy jr. sakar Joe Biden um að bera ábyrgð á Úkraínustríðinu þar sem 600 þúsund úkraínsk ungmenni hefðu fallið og 100 þúsund rússnesk ungmenni. Bandaríkin hefðu staðið að Maidon-byltingunni 2014 í Kænugarði og hafnað Minsk-friðarsamningum 2014, 2015 og friðarsamkomulaginu sem gert var á útmánuðum 2022. Biden hefði verið á bakvið ákvörðunina um að koma í veg fyrir að friðarfyrirkomulag Úkrana og Rússa; Zelinsky og Pútin í Istanbul næði fram að ganga. Hann nefndi hryðjuverkið á Nord Stream í Eystrasalti í september 2022. Það hefði veikt Þýskaland og gert landið að amerískri útstöð. „Við erum nokkru sinni nær kjarnorkustríði en 1962. Ef Donald Trump stendur við loforð sitt um að koma á friði í Úkraínu, þá réttlætir það eitt stuðning minn við hann,“ sagði Kennedy sem kvað Biden ítrekað hafa lýst því markmiði að fella Pútin-stjórnina. Markmið með samvinnu við Trump kvað Kennedy jr. að enda styrjaldir, bæta heilsu barna og gæslu á landamærum Bandaríkjanna.

Rógsumfjöllun á RÚV

Í furðulegri rógsumfjöllun Boga Ágústssonar á RÚV: Rugludallurinn Robert Kennedy eru hafðar uppi furðulegar ásakanir á hendur Kennedy jr. um „andstöðu við bólusetningar og alls kyns samsæriskenningar“ Bogi kveður Kenndy trúa að flúor í vatni lækki greindarvísitölu, sé krabbameinsvaldandi, og þráðlaust net leiði til „leka úr heilanum.“ Það er ómöguleiki helsta fréttamanns ríkismiðislins að leiða saman skoðanir og flytja hlutlausar fréttir. Af þessu tilefni var RÚV knúið til að birta leiðréttingu á bullinu í Boga með meðfylgjandi athugasemd við fréttina: Una Emilsdóttir, sérnámslæknir í atvinnu- og umhverfislæknisfræði, sendi leiðréttingu við greinina og segir að samband flúors og greindarvísitölu hafi verið rannsakað í talsvert langan tíma og staðfest í byrjun árs 2024. Því hærra sem flúorgildi mælist í mæðrum, því lægri sé greindarvísitala hjá börnum þeirra.

Þarf nokkuð að benda lesendum á hvor er rugludallurinn…

Fara efst á síðu