13 mánaða ungabarni nauðgað til bana

Samkynhneigt par í enska bænum Blackpool var í ættleiðingarferli með 9 mánaða gamlan dreng sem endaði á hryllilegan hátt með dauða barnsins aðeins fjórum mánuðum síðar. Kom það fram hjá saksóknara að drengurinn hafði orði fyrir „reglubundinni kynferðislegri og líkamlegri misnotkun af hálfu mannsins sem var að ættleiða hann.“

The Guardian greinir frá:

„Reglubundið var illa farið með drenginn, hann kynferðislega misnotaður og líkamlega misþyrmt áður en hann var drepinn af framhaldsskólakennara sem ætlaði að ættleiða barnið. Jamie Varley, 37 ára kennari og sambýlismaður hans, John McGowan-Fazakerley, 32 ára, voru í ferli við að ættleiða Preston Davey.

Varley hefur verið kærður fyrir morð og fengið 25 aðrar ákærur sem varða kynferðislega og líkamlega misnotkun barnsins. McGowan-Fazakerley hefur verið ákærður fyrir að láta glæpinn viðgangast og fyrir fjögur önnur afbrot.

Á fyrsta degi málsins sagði Peter Wright KC, saksóknari, við Preston dómstólnum að parið frá Blackpool virtist hafa verið „í stöðugu og ástúðlegu sambandi:

„En sönnunargögnin munu sýna að parið er gjörsamlega óhæft fyrir hlutverk foreldra til að ættleiða börn. Því miður kom þessi staðreynd í ljós, þegar það var orðið of seint fyrir Preston Davey.“

„Þetta er mjög tilfinningalega hlaðið mál. Það mun óhjákvæmilega vekja sterkar tilfinningar hjá öllum sem heyra smáatriði málsins.“

Barninu var komið fyrir hjá parinu í apríl 2023, níu mánaða gömlu. Fjórum mánuðum síðar var það flutt af þeim á bráðamóttöku með hjartastopp. Þrátt fyrir viðleitni læknateymisins lést barnið. Líkskoðun gaf orsök andláts sem bráða lokun á efri öndunarvegi, sem leiddi af sér annað hvort kæfingu, líklegast með hendi eða mjúku efni, eða með því að stinga hlut eða hlutum inn í munn þess.

Wright sagði:

„Jafn hræðilegt og þetta er, þá var þessi harmleikur ekki afleiðing einhvers hræðilegs en ófyrirséðs slyss eða náttúrulegs atburðar. Sönnunargögnum sem safnað var saman í rannsókn á ótímabæru andláti hans leiddu í ljós mun illvirkari mein. Við fullyrðum að sönnunargögnin sýni að hann hafi verið myrtur af einum þeirra sem treyst var fyrir velferð hans; einum af fyrirhuguðum ættleiðingaforeldrum hans. Við fullyrðum að sá sem bar ábyrgð á dauða Preston Davey sé varnaraðilinn Jamie Varley.“

Hann bað kviðdómendur að „herða sig“ þegar myndir af barninu eftir kynferðislega misnotkun voru sýndar á skjánum. Varley hafði einnig tekið fjölda mynda og myndskeiða af misnotkuninni og saksóknarinn sagði að kviðdómurinn myndi sjá myndbönd úr síma Varley, þar á meðal eitt af barninu sem virtist vera án eftirlits „hringla og renna“ um í baðkari í 14 mínútur á meðan Varley tók upp myndband og „skipti sér aldrei af því eða lyfti því upp … talaði ekki einu sinni við það.“

Kviðdómurinn fékk að heyra að þegar Preston dó hafði hann hlotið um 40 áverka. Meðal meiðsla hans voru 30 ytri marblettir. Wright sagði að barnið hefði marblett á læri sem læknar sögðu að væru „í samræmi við barsmíði með opinni hendi.“ Það voru marblettir á enninu sem samræmdust „taki á höfði litla drengsins“.

Varley neitar morði, manndrápi, tveimur ákæruliðum um kynferðislega líkamsárás, fimm ákæruliðum um grimmd gagnvart barni, alvarlegum líkamsárásum, kynferðisofbeldi gegn barni, 13 ákæruliðum um að taka ósæmilegar myndir eða myndbönd af barni, einnig um að dreifa ósæmilegri mynd af barni til meðákærða og einni gum að taka ósæmilega mynd.

McGowan-Fazakerley neitar að hafa látið dauða barnsins viðgangast, þremur ákæruliðum um grimmd gegn börnum og einni ákæru um kynferðisbrot gegn barni.

Réttarhöldin halda áfram.“