Zuckerberg harmar ritskoðun Facebook

Mark Zuckerberg eigandi Facebook hefur játað að hafa tekið þátt í áróðri Biden-Harris stjórnarinnar á Covid-tímanum. Hann harmar að hafa látið undan þrýstingi. Zuckerberg kveðst hafa verið „ítrekað beittur þrýstingiÞað var rangt af mér að láta undan,“ segir Zuckerberg. Þá harmar Zuckerberg að hafa „…bælt umfjöllun New York Post á tölvu Hunters Biden“ í aðdraganda forsetakosninganna 2020. Á sama tíma laug 51 CIA-FBI agent um að Rússar stæðu á bak við tölvuna og væru að  hafa áhrif á kosningarnar. Facebók og falsmiðlar dreifðu lyginni. Í tölvunni opinberuðust lögbrot Biden-feðga og svívirðileg kynlífs- og dópbrot Hunters.

Valdaránið 2020 í Washington; Coup de E‘tat hefur leitt Nato á braut styrjalda í Evrópu og Mið-Austurlöndum. Eftir yfirtöku Elon Musk á Twitter; nú X var upplýst um stórfellda ritskoðun Biden-stjórnarinnar þar á bæ. Raunar var svo að opinberir ritskoðarar Biden voru með skrifstofur og aðstöðu á Twitter. Musk lokaði fjörtíu og fjögur þúsund kynlífsreikningum á Twitter.

Ritskoðun og ofsóknir í Evrópu

Ritskoðun og ofstjórn vex stöðugt í Evrópu. Í Frakklandi var eigandi rússneska samfélagsmiðilsins Telegram, Pavel Durov handtekinn á Bourget flugvelli í París, á laugardag. Hann var handtekinn þegar einkaþota hans lenti og hefur verið sleppt gegn 5 milljón evra tryggingu. Durov er rússneskur með ríkisfang í Dubai og Frakklandi. Durov er sakaður um að neita frönskum stjórnvöldum um aðgengi að notendum; samstarfi við stjórnvöld. Frönsk stjórnvöld ásaka Telegram um barnaklám og dópsölu á netinu. Fjölmiðlar hafa skýrt frá því að Durov hafi komið til Parísar til þess að snæða kvöldverð með Emmanuel Macron forseta en í þess stað verið handtekinn að undirlagi Biden-stjórnarinnar. Telegram hefur synjað samstarfi við stjórnvöld og selur ekki aðgengi að notendum líkt og Facebók.

Ofsóknir í Bretlandi. Hótanir ESB í garð Musk

Í Bretlandi sætir ríkisstjórn Starmers gagnrýni fyrir að harðar ofsóknir á hendur svokölluðu „hægra öfgafólki“. Það er ekki vegna mótmæla heldur skrif á samfélagsmiðlum. Lögregla hefur brotist inn á heimili, handtekið og fangelsað fólk. Starmer-stjórnin sleppti um fimm þúsund föngum; þar á meðal illræmdum sakamönnum úr fangelsum til þess að rýma fyrir pólitískum föngum. Keith Starmer forsætisráðherra er sakaður um „orwellsk einræði“ og sundra þjóðinni; aðför að tjáningafrelsi og koma á hugsanalögreglu í anda Orwells.

Elon Musk hafði á dögunum viðtal við Donald Trump forsetaframbjóðanda Repúblikanaflokksins. Alls munu um 750 milljón manns hafa hlustað á viðtalið sem er fordæmalaus hlustun við vestrænan stjórnmálamann. Markaðskomizar ESB, Thierre Breton hafði í aðdraganda viðtalsins í hótunum við Musk um slæmar afleiðingar viðtalsins.

Fara efst á síðu