Vopnaútflutningur Svíþjóðar hefur náð nýjum hæðum. Stuðningurinn við Úkraínu hefur algjöran forgang og allri hefðbundinni skriffinnsku vikið til hliðar við vopnaafhendingar þangað. Sjóðir hergagnaiðnaðarins fyllast og stjórnmálamenn sem fjárfesta í sænskri vopnaframleiðslu græða vel þegar hlutabréfin hækka og hækka og hækka…..Úkraínustríðið er orðin gullgæs sænskra útflutningsgreina…
Manndráp og eyðilegging borga og bæja eru arðbær viðskipti og þar með haldbær viðskipti. Enginn siðferðismælikvarði sjáanlegur svo langt sem augað nær. Sænski vopnaiðnaðurinn er í sterkri uppsveiflu. Samkvæmt Inspectorate for Strategic Products (ISP) hefur útflutningur hergagna aldrei verið meiri en árið 2024. Þá nam hann 29 milljörðum sænskra króna sem er hæsta talan nokkru sinni og 63% aukning. Sænska ríkisstjórnin segir stuðning við stríðsrekstur Úkraínu mikilvægari en nokkru sinni fyrr, vopnaútflutningur þangað hefur tvöfaldast. Framkvæmdastjóri ISP, Carl Johan Wieslander segir:
„Stuðningur við Úkraínu er forgangsverkefni í öryggismálum fyrir Svíþjóð og mál sem tengjast Úkraínu eru einnig í hæsta forgangi hjá ISP.“
Vopn á færibandi til Úkraínu
Árið 2024 veitti Svíþjóð 52 útflutningsleyfi fyrir vopnasendingar ríkisins til Úkraínu og 30 leyfi fyrir vopnasölu frá sænska hergagnaiðnaðinum. Er um tvöföldun að ræða miðað við ár 2023.
Sænsku vopnin eru fyrst og fremst bardaga- og loftvarnakerfi á jörðu niðri sem eru einmitt þær tegundir vopna sem þarf til að halda stríðinu gangandi. Samtímis sem Úkraína fær sænsk vopn á áður óþekktum hraða, þá uppskera vopnaiðnaðurinn og fjármálaelítan milljarða sænskra króna í hreinan gróða.
Stjórnmálamenn og stórfyrirtækin græða á stríðinu
Sænski vopnaiðnaðurinn er gullnáma fyrir þá sem hafa fjárfest í réttum hlutabréfum. Vopnaframleiðandinn Saab skilar methagnaði og hlutabréf hafa snarhækkað í verði.
Maria Malmer Stenergard, utanríkisráðherra Svíþjóðar (mynd Wikipedia), keypti hlutabréf í vopnaframleiðandanum Mildef rétt áður en ríkisstjórnin lagði stóra pöntun hjá fyrirtækinu sem lyfti hlutabréfum fyrirtækisins í hæstu hæðir.

Vopnaiðnaðurinn hræðist friðinn
Samkvæmt rannsóknastofnuninni Sipri þá jukust tekjur vopnaiðnaðar í heiminum um 4,2% árið 2023. Iðnaðurinn hefði getað stækkað enn þá meira ef stríðin hefðu aukist enn meira.
Sænski vopnaiðnaðurinn ræður starfsmenn til að mæta vaxandi eftirspurn, það eina sem skyggir á markaðshorfur framtíðarinnar er ef samið verði um frið í Úkraínu. Stöðvast kjötkvörnin í Úkraínu og mannsslátrun og eyðileggingu lýkur, þá hverfur hinn arðbæri markaður. Sölumenn dauðans hjá ESB gera því allt sem í þeirra valdi stendur til að koma í veg fyrir frið. Hagnaður vopnaiðnaðarins verður að aukast allan tímann. Líf nafnlausa hermannsins vegur létt.
Hér er tafla yfir helstu kaupendur vopna frá Svíþjóð 2024. Tölurnar eru í milljónum sænskra króna.
