Kína finnur yfir eitt þúsund tonn af gulli

Mikið vinnanlegt gull hefur fundist á Wangu námusvæðinu í Hunan héraði í Kína að sögn kínverskra yfirvalda. Fréttin olli því að gullverðið sló næstum nýtt met, skrifar Live Science.

Gulllindin verðmæta gæti innihaldið allt að 1.100 tonn af gulli og gæti verið stærsti einstaki gullforðinn sem fundist hefur. Gullið fannst á 2.000 metra dýpi og er metið á milli 11 – 12 þúsund milljarða íslenskra króna (83 milljarða dollara).

Samkvæmt sérfræðingum frá Jarðfræðistofnunni í Hunan-héraði er um að ræða 40 gullæðar með allt að 138 grömm á hvert tonn af málmgrýti sem eru mjög góð gæði. Chen Rulin, sérfræðingur hjá stofnuninni segir við kínverska ríkisfjölmiðla að borkjarnar séu með sýnilegt gull. Þegar fréttin barst út hækkaði gullverð á heimsmarkaðinn í nýjar hæðir, 2.700 dollara á únsu.

Þrátt fyrir að Kína sé stærsti gullframleiðandi heims, þá stendur landið aðeins fyrir 10% af gullframleiðslu heims og neytir þrisvar sinnum meira af gulli en landið framleiðir. Nýja gullið gæti fullnægt gullþörf Kína í 1,4 ár og mun ekki gera Kína óháð innflutningi. Sérfræðingar telja að viðbótarforði gæti verið á nærliggjandi svæðum.

Ef útreikningar standast, þá er nýja náman af svipaðri stærð og South Deep gullnáman í Suður-Afríku sem hefur hingað til verið stærsta þekkta gullnáma heims með 1.025 tonn af gulli.

Fara efst á síðu