Donald Trump Bandaríkjaforseti og Marco Rupio, utanríkisráðherra hafa báðir varað við því að Bandaríkin gætu dregið sig úr friðarviðræðunum sem núna hefur gerst.
Eftir margra mánaða diplómatískar tilraunir draga Bandaríkin sig núna til baka sem sáttasemjari í deilunni milli Úkraínu og Rússlands. Áherslan er í staðin lögð á fjárfestingar og endurreisn.
Bandaríkin munu ekki lengur gegna virku hlutverki sáttasemjara í friðarviðræðum Úkraínu og Rússlands. Tilkynningin barst á fimmtudag frá Tammy Bruce, talskonu utanríkisráðuneytisins sem sagði á blaðamannafundi:
„Við erum enn staðráðin í að berjast fyrir friði, en við munum ekki lengur fljúga umhverfis jörðina við hvert tækifæri. Núna er það undir aðilunum komið að leggja fram raunhæfar hugmyndir um hvernig stríðinu skuli lokið. Röðin er komin að þeim.“
Yfirlýsingin kemur í kjölfar þess að báðir aðilar samþykktu ekki tillögu um tímabundið vopnahlé. Samkvæmt fréttum hafði Úkraína samþykkt 30 daga vopnahlé en Rússland kaus að styðja ekki tillöguna að svo stöddu.
Frá viðræðum til samstarfs
Bandaríkin styrkja samband sitt við Úkraínu með nýjum námusamningi, þar sem bandarískum fyrirtækjum er veittur forgangur að afgerandi fjárfestingum í námuiðnaði landsins. Samningnum er ætlað að stuðla að endurreisn Úkraínu og skapa langtíma efnahagsstöðugleika. Bruce sagði:
„Þetta er ekki bara fjárhagslegur samningur. Þetta er langtímafjárfesting í bata og öryggi.“
Búist er við að þing Úkraínu greiði atkvæði um fullgildingu samkomulagsins þann 8. maí.