Það þarf að koma kagganum í lag – strax í dag

Íris Erlingsdóttir er komin heim eftir veru á fósturmoldinni, þar sem hún hafði í nógu að snúast, meðal annars í viðtalsþætti hjá Bjórkastsmönnum. Gústafi finnst að enn sé von með Ísland að sjá og heyra íslenska karlmenn tala tæpitungulaust eins og bjórkastarar gerðu. Vonandi taka aðrir íslenskir menn þá sér til fyrirmyndar og neita að láta breyta sér í kerlingar eins og er efst á vinsældalista femínistanna.

Við höfum rætt það áður en „kvemínistar” hafa nú nær allar stöður í opinbera geiranum og í skólakerfinu. Er það ástæðan fyrir þeirri hrikalegu útkomu grunnskólans á Íslandi í dag sem ekki tekst að kenna börnum eftir tíu ára skólagöngu, hvorki að læra að lesa eða reikna?

Þá voru Evrópusambandsmálin til umræðu en Gústaf hefur skrifað nýlega tvær greinar sem Morgunblaðið hefur birt, þá fyrri sem er aðvörun til þjóðarinnar að láta ekki blekkja sig að halda að verið sé að kjósa um eitthvað annað en aðild að ESB. Seinni greinin var afrakstur úttektar á umsögn Loga Kjartanssonar lögmanns um brot utanríkisráðherra á stjórnarskránni með því að göslast inn á valdsvið forsætisráðuneytisins og leggja fram þingsályktunartillögu um ESB-atkvæðagreiðslu núna í haust. Tillaga utanríkisráðherrans er skýlaust brot á forsetaúrskurði um skiptingu valds á milli ráðherra og ráðuneyta og allar þingfærar tillögur sem varða stjórnarskrána og fullveldi Íslands eru lögum samkvæmt á borði stjórnarráðs Íslands sem fellur undir forsætisráðuneytið. Alþingi ber að vísa tillögunni tafarlaust til föðurhúsanna, þar sem hún er ekki þingtæk og kæra ólöglegt athæfi utanríkisráðuneytisins til Landsdóms og að Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir víki af þingi á meðan rannsókn fer fram. Spurningin er einnig um vanhæfni forsætisráðherrans sem hefði átt að stöðva lögleysuferð eins af ráðherrum sínum.

Þrjóskast ráðamenn við að viðurkenna að þeir eigi að fylgja stjórnlögum Íslands, þarf þjóðin að grípa í taumana og krefjast þess að forsetinn rjúfi þing og efnt verði til nýrra alþingiskosninga, svo þjóðin geti kosið löghlýðnari einstaklinga inn á þing.

Einn liður í hinu kolruglaða vókaða samfélagi er að rugla fólk svo mikið í ríminu að það viti ekki hvað er sannleikur lengur. Markmiðið með slíkum sálfræðilegum hernaði er að undirbúa valdatöku ógnarstjórnar sem ræður öllu og bannar allar umræður og gagnrýni. Enginn hefur gert efninu betri skil en Hanna Arendt sem tókst að flýja undan skelfingu nazismans í Þýskalandi til Bandaríkjanna. Hún hefur rannsakað, hvernig það getur gerst að slík skrímsli fjandsamleg mannkyni komist til valda sem Þjóðólfur hefur skrifað um. Engu er líkar en hún sé að fjalla um Ísland ár 2026 því ástandið er farið að minna illþyrmilega á ástandið fyrir seinni heimsstyrjöldina.

Eitt af því sem notað er til að rugla fólk er tungumálaverkfræði transins sem líta má á sem beina árás á menningu okkar og möguleika að tjá okkur hvert við annað. Óskilgreint hatur á að stýra lögum í stað staðreynda og þöggun fjölmiðla og valdhafa má líkja við ritskoðun þar sem einungis skoðanir elítunnar fá að koma fram. Undantekningar eru sem betur fer á reglunni, því einstakir stórir fjölmiðlar eins og til dæmis Morgunblaðið heldur uppi sterkum grundvelli fyrir lifandi umræðu þjóðarinnar. Aðrir eins og RÚV má loka að ósekju.

Þegar ástandið er orðið svo alvarlegt að ráðherrar hafa týnt siðferðinu og lögleysa ræður ríkjum, þá er ástandið orðið eins og í lagi Stuðmanna Strax í dag.

Kagginn er bilaður og það þarf að koma honum í lag – strax í dag!