Trump endurreisir utanríkisstefnu Bandaríkjanna í ferð til Parísar

Donald Trump forseti endurreisti opinbera afstöðu Bandaríkjanna á alþjóðavettvangi í heimsókn sinni til Parísar vegna mikilfenginnar opnunarhátíðar Notre Dame dómkirkjunnar eftir brunann fyrir fimm árum síðan.

Opnunarhátíðin varar alla helgina með byrjun fyrir alþjóðlega boðna gesti á föstudag og helgihald og tónleika í gær og í dag. Mikill áhugi var á nýkjörnum forseta Bandaríkjanna og nærvera hans gjörbreytir stöðu heimsmála. Bara handaband hans við Macron Frakklandsforseta sýndi, hver það er sem er hugsandi og með haldgóða stefnu af þeim tveimur. Stjórnmálin eru í lamasessi í Frakklandi, svikamylla Macron gekk ekki eftir og stjórnin nýfallin og traust almennings á Macron í lágmarki. En Trump kemur með meirihluta bandarísku þjóðarinnar að baki sér eins og stormsveipur til Evrópu og skilaboðin eru skýr: Bandaríkin eru ekki lengur í aftursætinu i heimsmálunum.

Joe Biden var fjarverandi en Jill Biden mætti í hans stað. Samkvæmt New York Post var handaband Trumps við Macron „spennuþrungið og yfirgnæfandi.“ Trump hrósaði Macron fyrir endurbyggingu Notre Dame dómkirkjunnar:

„Emmanuel Macron forseti hefur unnið frábært starf við að tryggja endurreisn Notre Dame til fullrar dýrðar og jafnvel enn betur. Þetta verður mjög sérstakur dagur fyrir alla!“

Macron þakkaði Trump fyrir að koma og vera viðstaddur enduropnun Notre Dame dómkirkjunnar:

Fundur Trump, Macron og Zelensky

Zelensky, Trump og Macron héldu fund áður en farið var á opnunarhátíðina. Núna hafa stríðsbrjálæðingar Washington og Brussel fengið sterkan andstæðing gegn sér. Utanríkisstefna Bandaríkjanna er gjörbreytt miðað við tíð Bidens sem hleypti öllu í bál og brand. Trump vill frið, ekki stríð og hefur eflaust rætt það á fundinum með Zelensky og Macron.

Fara efst á síðu