Yfirmaður innan CIA sakar nú bandaríska leyniþjónustukerfið um að hafa falið sannleikann um uppruna covid-19, haft eftirlit með eigin rannsakendum og stöðvað birtingu viðkvæmra skjala um mörg umdeild mál. Vitnisburðurinn er þegar sagður eitt sprengihættasta uppljóstrunarmál síðan á áttunda áratugnum.
James Erdman III, háttsettur aðgerðastjóri hjá CIA, gaf vitnisburð undir eiði fyrir öldungadeild Bandaríkjaþings 13. maí. Hann starfaði áður innan sérstaks eftirlitshóps DIG (Director’s Initiatives Group) sem var settur á laggirnar undir stjórn leyniþjónustustjórans Tulsi Gabbard til að rannsaka uppruna covid, misnotkun leyniþjónustu og leynistimpluð skjöl.
Gerður hefur verið samanburður við svo kallaða Church-nefnd. Church-nefndin var rannsóknarnefnd þingsins á áttunda áratugnum sem afhjúpaði umfangsmikla misnotkun valds innan CIA, FBI og NSA. Þar á meðal voru ólöglegt eftirlit með Bandaríkjamönnum, leynitilraunir á borð við MKULTRA og innrás í stjórnmálahópa. Erdman nefnir sjálfur þörfina á „annarri Church-nefnd“ til að endurheimta lýðræðislegt eftirlit með leyniþjónustukerfinu.
Í vitnisburði sínum hélt Erdman því fram að leyniþjónustan hefði árum saman markvisst gert lítið úr kenningunni um að kórónuveiran hefði lekið frá rannsóknarstofu í Wuhan. Edman sagði:
„Leiðtogar leyniþjónustunnar og háttsettir greinendur gerðu lítið úr möguleikanum á að covid-faraldurinn hefði orðið til vegna rannsóknarstofuslyss.”
Hann telur að Anthony Fauci, sem bar ábyrgð á viðbrögðum Bandaríkjanna við faraldrinum á covid-tímanum, hafi gegnt lykilhlutverki í ferlinu með því að stýra því hvaða sérfræðinga leyniþjónustan ætti að hlusta á.
„Hlutverk dr. Faucis í yfirhylmingunni var meðvituð.”
Samkvæmt skjölunum notaði Fauci áhrif sín til að fá leyniþjónustustofnanir til að vinna með vísindamönnum sem þegar höfðu fjárhagsleg og fagleg tengsl við opinberu dýraupprunakenninguna að því er New York Post greinir frá. Nokkrir þessara vísindamanna tóku einnig þátt í vinnunni að greininni „The Proximal Origin of SARS-CoV-2“, sem var notuð til að hafna rannsóknarstofulekanum snemma í faraldrinum.
Greinendur beittir þrýstingi
Erdman lýsir einnig hvernig greinendur sem studdu rannsóknarstofuleka-kenninguna hafi verið refsað innan kerfisins. Samkvæmt vitnisburðinum studdu sex af sjö tæknilegum sérfræðingum rannsóknarstofuleka-kenninguna árið 2023, en stjórn CIA breytti samt niðurstöðunni í að uppruna veirunnar yrði hugsanlega aldrei hægt að staðfesta nákvæmlega.
„Precisely er ekki orð sem greinendur nota. Það er orð sem maður notar þegar maður vill meðvitað loka umræðunni” sagði Erdman við yfirheyrsluna. Hann hélt því einnig fram að CIA hefði haft eftirlit með símum og tölvum DIG-hópsins þegar hópurinn fór að nálgast viðkvæmar niðurstöður.
„CIA hafði með ólögmætum hætti eftirlit með tölvu- og símanotkun DIG-starfsfólks, rannsóknum þeirra og samskiptum við uppljóstrara.“
JFK-skjöl og Havana-heilkennið
Uppljóstranirnar stoppa ekki við covid. Erdman segir að CIA hafi tekið til baka 40 kassa af skjölum tengdum morðinu á John F. Kennedy og MKULTRA sem átti að aflétta leynd af.
Erdman sagði einnig að niðurstöður tengdar Havana-heilkenninu (taugaskemmdum sem hafa komið fram hjá bandarískum diplómötum og leyniþjónustustarfsmönnum) hafi verið stöðvaðar innan kerfisins. Blaðamaðurinn Catherine Herridge greinir frá því að einkennin séu tengd grunuðum stýrðum orkuvopnum.
Talskona CIA, Liz Lyons, hafnar á sama tíma allri yfirheyrslunni sem „óheiðarlegu pólitísku leikhúsi“. En öldungadeildarþingmennirnir Rand Paul og Ron Johnson krefjast nú fullrar rannsóknar og verndar fyrir uppljóstrarann.
