Allar þessar konur sem brjóta lögin …

Þegar viðbrögð stofnana og embætta eru skoðuð ásamt samhæfðum vinnubrögðum, þá er rökrétt að draga þá ályktun að forstjórar og æðstu yfirmenn embætta og  stofnana hafi verið ráðnir til þess að þagga og hylma fósturvísamálið eftir að börnin voru fædd og eftir að Art Medica stal nítján fósturvísum hjónanna Gunnars Árnasonar og Hlédísar Sveinsdóttur. Slík er samhæfingin. Á öllum póstum eru konur sem véla fyrir vald. Á þetta benda  bandarískir ráðgjafar, lögfræðifirmu hjónanna í Kaliforníu og Miðfylkjum Bandaríkjanna.

Störf á forsendum þöggunar

Um eru að ræða Ölmu Möller Landlækni, Helgu Þórisdóttur Persónuvernd, Ingibjörgu Lárusdóttur Rafrænni Sjúkraskrá, Sigríði Friðjónsdóttur Ríkissaksóknara, Maríu Káradóttur yfirmann ákærusviðs LRH, Höllu Bergþóra Björnsdóttir lögreglustjóra LRH og Sigríði Björk Guðjónsdóttur Ríkislögreglustjóri. “Engin þeirra hefur gætt að hæfi sínu og ekki svarað erindum. Konunum hlotnaðust störf á forsendum þöggunar. Slík er samhæfing og samtal milli hlutaðeigandi stofnana og embætta um hvernig bregðast skuli við. Við teljum þetta vera háttsemi sem feli í sér lögbrot,“ segja hjónin. Ráðningar kvennanna eru til komnar eftir að öll meint lífbörn Gunnars og Hlédísar eru fædd.

Guð sér um málin

Agnes Sigurðardóttir var kjörin biskup 2012 en þá var séra Grétar Halldór Gunnarsson orðinn foreldri 2010, séra Anna Sigríður Pálsdóttir orðin amma 2009 og séra Geir Waage í Reykholti afi 2011. Hjónin Gunnar og Hlédís áttu fund með Agnesi á Biskupsstofu. Guðskonan vildi engin afskipti hafa af málum og engan áhuga á uppruna barnanna. Hún kvað Drottinn sjá um málin. Nýr biskup Guðrún Karls Helgudóttir starfaði með séra Grétari í Grafarvogi svo hún er innvígð og innmúruð um fósturvísismál. Báðar eru biskupar öflugir transhúmanistar og samþykkar kenningum Siðmenntar um að maðurinn sé æðri Drottni og ákveði kyn í samræmi við sjálf-ræðis-frelsis reglu guðlausra. Hér eru bara snillingar á ferð. Konurnar níu ráða ráðum sínum um að hylma yfir  lögbrot og brjóta grundvallar mannréttindi á ellefu börnum sem eiga lögbundinn rétt til þess að þekkja uppruna sinn, líf-foreldra og systkini.

Fara efst á síðu