Donald J. Trump Bandaríkjaforseti og Marco Rubio utanríkisráðherra hunsa ESB og einbeita sér þess í stað að tvíhliða samskiptum við einstaka Evrópulönd. Og hvers vegna skyldu þeir ekki bara gera það? Þegar betur er að gáð, þá er elítan í Brussel að eyðileggja þjóðir ESB með því að þvinga þær til að hlýða skipunum glóbalizta.
ESB leiðir vókismann/pólitíska rétttrúnaðinn og kyndir undir glataðar glóbalízkar hugmyndir um óheftan fólksinnflutning, nettó-núll þráhyggju hamfarahlýnunarkirkjunnar, græna orkubrjálæðið, kynskipti barna og eilíft Úkraínustríð.
Eða með orðum gamals vinar Trumps, Viktor Orbán, forsætisráðherra Ungverjalands:
„ESB er nútíma skopstæling á Sovétríkjunum.“
Trump sagði í skjáræðu á Davos WEF ráðstefnunni:
„Frá sjónarhóli Bandaríkjanna þá kemur ESB fram við okkur á afskaplega ósanngjarnan og afar slæman hátt. Þeir gera það mjög erfitt um vik að koma vörum inn í Evrópu, en samt reikna þeir sjálfir með að selja og þeir selja vörur sínar í Bandaríkjunum. Við erum með hundruð milljarða dollara halla í viðskiptum við ESB og enginn er ánægður með það. Og við munum bregðast við því.
Þeir taka í rauninni ekki við landbúnaðarvörum okkar og þeir taka við bílunum okkar, samt senda þeir bíla til okkar í milljónatali. Þeir setja tolla á það sem við viljum gera … Við höfum margar stórar kvartanir gagnvart ESB.“
27. janúar sendi Kaja Kallas utanríkismálastjóri ESB Marco Rubio boð um að mæta á utanríkisráðherrafund hjá ESB. Að sögn hunsaði Rubio boðið.
– Hún [Kaja Kallas] sagði blaðamönnum að hún hefði beðið hann um að koma til að útskýra sjónarmið Bandaríkjanna – eins og að taka yfir Grænland sem er heimili 55.000 ESB-meðborgara. Rubio mætti ekki á fundinn á mánudaginn. Kíkti heldur ekki við í gegnum Zoom. Reyndar fundust þess engin merki að hann hefði svarað boðinu.
Þögn Rubios vekur kvíða meðal embættismanna í Brussel sem grunar að ríkisstjórn Donalds Trumps forseta sé vísvitandi að frysta ESB úti. Stjórn skúrksins Joe Biden hafði náið samstarf við Ursulu von der Leyen, forseta ESB um allt „frá refsiaðgerðum gegn Rússlandi til útvegun bóluefna.“ Þeir dagar eru horfnir.
Trump er að rífa niður þegar rotið bandalag sem gerir ESB-hirðina veikari gagnvart þrýstingi í samningaviðræðum. Embættismenn ESB eru klofnir. Sumir koma fram undir nafnleynd og greina frá því, að Mette Frederiksen hafi beðið kollega sína í ESB að tala varlega til að auka ekki frekar á spennu í samskiptum Dana og Bandaríkjanna. Aðrir segja frá því, að Trump vilji eiga tvíhliða samband við einstök ríki og þá verði ESB að standa saman.
Engum embættismanni ESB var boðið í embættistöku Trumps en forsætisráðherra Ítalíu, Giorgia Meloni, var þar.