Arnari Þór Jónsson lögmaður hefur afhent ríkislögreglustjóra kæru á hendur Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, utanríkisráðherra, fyrir landráð vegna Bókunar 35. Lagði Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir fram Bókun 35 sem frumvarp á Alþingi sem núna er til umræðu og ríkisstjórnin ætlar að keyra í gegn á Alþingi. Arnari Þór Jónsson er lögmaður 30 einstaklinga í hópnum Þjóðfrelsi sem leggja fram kæruna (sjá pdf að neðan).
Stjórnarskráin heimilar ekki framsal stjórnartauma til erlendra valdastofnana
Í kærunni segir meðal annars:
„Kjörnir fulltrúar á Alþingi sækja umboð sitt til íslenskra kjósenda og því er uppspretta löggjafarvaldsins hjá fólkinu sem landið byggir. Í því umboði felst engin heimild til að afhenda stjórnartauma, ríkisvald og löggjafarvald, í hendur erlendra valdastofnana, því stjórnarskrá lýðveldisins gerir ráð fyrir að æðsta handhöfn íslensks ríkisvalds skuli vera á Íslandi.“
Í kærunni er bent á að fullveldi þjóðar feli í sér að íslensk lög séu sett af lýðræðislega kjörnu Alþingi og að æðsta túlkunarvald um þau lög sé hjá íslenskum dómstólum og vísað til skýrra ákvæða stjórnarskrárinnar um þau mál. Þá segir að með frumvarpi utanríkisráðherrans um Bókun 35 er lagt til að Alþingi löghelgi fyrirmæli um almennan forgang EES-reglna hérlendis og að slíkt ákvæði fæli í sér grundvallarbreytingu á íslenskum rétti, þar sem túlkunarvald um þessar EES-reglur verði alfarið eftirlátið erlendum dómstólum sem gengur í bága við 59. grein stjórnarskrárinnar.
Í kærunni er einnig bent á að þingmenn misvirði og beinlínis brjóta í berhögg við stjórnarskrá lýðveldisins sem þeir hafa sjálfir gefið drengskaparheit um að undirgangast sem æðstu réttarheimild Íslands ef þeir greiða atkvæði með Bókun 35.
Landráð
Enn fremur segir í kærunni:
„Hugtakið landráð vísar m.a. til þess þegar menn fremja verknað sem miðar að því að stofna öryggi eða sjálfstæði íslenska ríkisins í hættu eða koma ríkinu undir erlend yfirráð.“
Í lokaorðum kærunnar segir:
„Umbjóðendur mínir krefjast þess að ríkislögreglustjóri taki erindi þetta til rannsóknar og úrvinnslu í samræmi við lagaskyldur embættisins, sbr. fyrrgreint ákvæði 2. mgr. 5. gr. lögreglulaga nr. 90/1996, og sinni erindi þessu af ýtrustu virðingu fyrir þeim hagsmunum sem í húfi eru og vinni úr því á grundvelli þeirrar ábyrgðar sem á embættinu hvílir og að gættum þeim ákvæðum almennra laga og stjórnarskrár sem málefnið varða.
Af hálfu umbj.m. er áskilinn allur réttur til að koma á framfæri ítarlegri rökstuðningi, lagarökum, sjónarmiðum og gögnum, svo og til að leggja fram sambærilega kæru á hendur hverjum þeim þingmanni sem uppvís kann að verða að því að greiða atkvæði með því að frumvarp þetta verði að lögum.
Virðingarfyllst,
f.h. Þjóðfrelsis,
Arnar Þór Jónsson lögmaður.“
Kæruna má lesa í heild sinni hér að neðan: