Lýðræðissinninn Ágústa Árnadóttir skrifar afar áhugaverða grein í Vísi fyrir tveimur dögum síðan vegna hatursumræðu stjórnvalda gegn friðsömum mótmælendum á Austurvelli um helgina. Hún segir réttilega að „fólk í lýðræðisríki hafi rétt á að spyrja, efast og halda stjórnvöldum við ábyrgð.“ Samtímis á hún og margir með henni erfitt að kyngja því, hvernig stjórnmálafólk og fagfólk „talar til og um eigið fólk þegar það tjáir sig.“
Ágústa Árnadóttir skrifar:
Í lýðræðisríki á fólk rétt á að spyrja. Að efast. Að mótmæla. Að halda stjórnvöldum við ábyrgð, án þess að verða niðurlægt, smánað eða brennimerkt.
Friðsöm mótmæli, fjandsamleg viðbrögð
Eftir mótmælin á Austurvelli 31. maí – þar sem nær þúsund manns komu saman friðsamlega til að spyrja um stefnu í hælismálum, hvernig fjármunir eru nýttir og hvaða samfélagsleg áhrif þessi mál hafa – sá ég svart á hvítu hvernig umræðunni er kerfisbundið snúið upp á þá sem dirfast að spyrja.
Hv ers var raunverulega krafist?
Á mótmælafundinum, skipulögðum af hópnum Ísland – þvert á flokka, voru bornar fram skýrar og orðréttar kröfur sem lutu að framkvæmd hælismála og ábyrgð stjórnvalda:
- Að hælisleitendur verði vistaðir í lokuðu úrræði eða sendir úr landi á meðan á bakgrunnsrannsókn stendur og þeir sem koma án skilríkja verði vistaðir eða vísað út.
- Afturköllun dvalarleyfa eða ríkisborgararéttar við alvarlegt brot eða rangar upplýsingar.
- Afnám fjölskyldusameiningar í núverandi mynd.
- Fimm ára hlé á nýjum hælisumsóknum á meðan kerfið er endurskoðað frá grunni.
- Að stuðningur við fólk í neyð sé veittur heima fyrir – þar sem hjálpin nýtist fleirum og betur.
- Erlendum brotamönnum afpláni í sínu heimalandi með gerð milliríkjasamninga, slíkt fyrirkomulag er ódýrara og mannúðlegra.
Þessar kröfur snúa ekki að útilokun eða hatursáróðri – heldur ákalli um að lögum sé framfylgt, að kerfið virki og að opinber ábyrgð sé skýr.
Samt sem áður voru þátttakendur í þessum fundi brennimerktir sem öfgafólk, rasistar og jaðarmenn – einfaldlega fyrir að spyrja Hvernig virkar þetta kerfi – og hver ber ábyrgð?“
Síðan tekur Ágústa saman viðbrögð yfirvalda sem einkennast af ósannindum, falskenningum og hræðsluáróðri. Þjóðólfur hvetur alla landsmenn til að lesa þessa grein til að vita sannleikann í málinu.