Stríðsástand í suður Stokkhólmi

Sprengjurnar springa þétt í Stokkhólmi. Snemma í morgun sprakk sprengja við fjölbýlishús í Kärrtorp í suður Stokkhólmi og eyðilagði eins og venjulega innganginn í húsið. Nokkrum tímum seinna strax fyrir klukkan 9 kom svo næsta sprengja við fjölbýlishús í Bagarmossen í suður Stokkhólmi og voru tveir 15 ára piltar handteknir. Núna hefur lögreglan lokað af miklu svæði í suður Stokkhólmi vegna þess að handsprengjur hafa fundist á reiðhjólastígum.

Núna ríkir stríðsástand í suður Stokkhólmi, þar sem lögreglan hefur lokað af stóru svæði og skipar fólki að halda sér innan dyra, því sprengjudeildin þefar uppi handsprengjur á hjólastígum sem þarf að gera óvirkar. Örvinglaðir foreldrar reyna að ná í börn sín af leikskólum og einhverjir hafa lokast inni á veitingastöðum í hverfinu. Ótti og hræðsla ríkir og fólk uppgefið og vonlaust að sögn P4, Stokkhólmsrás ríkisútvarpsins sænska SR.

Aftonbladet greinir frá því að núna koma kröfur um að yfirvöld lýsi yfir neyðarástandi vegna allra hryðjuverkanna. Á fyrstu 28 dögum ársins hafa hryðjuverkahóparnir sprengt 30 sprengjur í Svíþjóð. Í gær var sprengjuódæði framið í Upplands-Bro norðvestur af Stokkhólmi.

Ástandið er gjörsamlega farið úr böndunum í Stokkhólmi. Enginn getur lengur verið óhultur neins staðar nokkurn tíman. Fólk þarf stöðugt að lifa með að annað hvort hvíni byssukúlur eða sprengjur springa þar sem það er statt. Þetta stress er farið að taka sinn toll, húsverð lækka í verði á verstu svæðunum. Þeir sem geta flytja eitthvað annað. Almenningur situr fastur. Stokkhólmur er að breytast í vígvöll.

Fara efst á síðu