Sífellt færri Svíar þora að fara út á kvöldin

Samkvæmt nýlegri tölfræði frá Hagstofu Svíþjóðar (sjá pdf að neðan), þá hefur næstum fimmti hver Svíi forðast að fara út á kvöldin einhvern tímann á síðasta ári af ótta við að verða fyrir árás eða hótun.

Öryggisleysið bitnar sérstaklega á konum. Ár 2024 sögðust 27% kvenna – samanborið við níu prósent karla – hafa einhverju sinni forðast að fara út á kvöldin af ótta við ofbeldi og hótanir.

Aðstæður ungra kvenna eru sérstaklega áhyggjuefni: meðal kvenna á aldrinum 16 – 29 ára forðaðist ein af hverjum þremur konum eða 32% að fara út.

Aðstæðurnar hafa versnað verulega frá upphafi níunda áratugarins. Þá sögðust 20% kvenna og aðeins fjögur prósent karla forðast að fara út á kvöldin vegna hræðslu.

Samkvæmt skýrslu Hagstofu Svíþjóðar er raunveruleg hætta á að verða fyrir ofbeldi og hótunum einnig mikil. Sex prósent Svía segjast hafa orðið fyrir hótunum eða ofbeldi á síðasta ári. Verst verður unga fólkið fyrir barðinu á þessu ofbeldi, enda er næstum einn af hverjum tíu einstaklingum á aldrinum 16 – 29 ára fórnarlömb ofbeldisins.

Öryggisleysi fylgir húsnæðisaðstæðum. Þannig eru konur í fjölbýlishúsum mun óöruggari en þær sem búa í einbýlishúsum. 32% kvenna í fjölbýlishúsum veigra sér við að fara út samanborið við 22% kvenna í einbýlishúsum eða raðhúsum. Heildarhlutfall þeirra sem hafa forðast að fara út á kvöldin vegna ótta við hótanir eða ofbeldi hefur aukist úr 12% á árunum 1980–1981 í 18% árið 2024.

Skýrsla um málið:

Fara efst á síðu