Siðræna transgátan

Íris Erlingsdóttir, fjölmiðlafræðingur, er þekkt fyrir ósérhlífna baráttu gegn ranglæti og mannréttindabrotum og hefur látið mikið til sín taka í málefnum transhugmyndafræðinnar. Þjóðólfur birtir hér eldri grein hennar um Siðrænu transgátuna sem birtist fyrst í Morgunblaðinu þann 25. mars 2022. Með fylgja nokkur nýleg meme hennar vegna transmálanna á Íslandi í dag.

Þessi grein birtist fyrst í Morgunblaðinu 25. mars 2022.

Íris Erlingsdóttir skrifar:

„Lyfjafyrirtæki er að prófa lyf við blöðruhálskrabbameini og býður karlmönnum að skrá sig í lyfjarannsóknina. Ég læt skrá mig sem karlmann, því ég er „trans“ og skilgreini mig sem karlmann. Lyfjafyrirtækið gerir enga athugasemd; löggjafinn hefur lögfest að „kynvitund“ ræður ríkjum. Sá sem skilgreinir sig sem karlmann er karlmaður. Ekki skiptir máli að líkami minn er kvenkyns og ég er því ekki með blöðruhálskirtil. Lyfjafyrirtækið sendir niðurstöðurnar til Lyfjaeftirlitsins. Þeir minnast ekki á að einn – eða fleiri – þátttakendur í rannsókninni voru kvenkyns. Lyfjaeftirlitið samþykkir lyfið og heimilar fyrirtækinu að markaðssetja það. Eiga karlmenn sem svo í góðri trú taka lyfið við blöðruhálskirtilskrabbameini rétt á að vita að a.m.k. einn þátttakenda í lyfjaprófununum var kvenkyns og því ekki með blöðruhálskirtil?“

Við vitum hvernig forsætisráðherra og meirihluti Alþingis, sem bera ábyrgð á gender-gremlensku nýlenskulöggjöfinni nr. 80/2019 um „kynrænt sjálfræði“, myndu svara. Samkvæmt trans-biblíunni þeirra er það í verkahring ríkisvaldsins að framleiða gervi-raunveruleika fyrir þá sem „þjást af vanlíðan gagnvart eigin kyneinkennum og kyngervi sem [þeir telja] vera í andstöðu við persónuleika sinn“. Alþingi hefur ákveðið að þar sem raunveruleikinn „skapar … óþægindi fyrir trans einstaklinga“ verður löggjöfin að vera í samræmi við tilfinningar þeirra.

„Ljóst má vera að langtum meiri fjölbreytni ríkir varðandi kyn og kynvitund en hin hefðbundna tvískipting í karlkyn og kvenkyn gefur til kynna,“ segir í lagafrumvarpinu.

Þetta er alrangt. Það er engin „fjölbreytni varðandi kyn“ mannvera og að hrista saman „kyn og kynvitund“, sem ekki er mögulegt að mæla á hlutlægan hátt, í kynferðiskokkteil skapar rugling og misskilning varðandi þá einföldu staðreynd að aðeins tvær tegundir mannvera – karlkyns og kvenkyns – hafa gengið á þessari jarðarkringlu.

Orðið „kyn“ hefur sömu merkingu í líffræði og í íslensku: „líffræðileg flokkun einstaklinga sem karlkyns eða kvenkyns“. Í gender-gremlensku er „kyn“ hins vegar „safnhugtak sem nær … yfir kyneinkenni, kyngervi, kynvitund og kyntjáningu“. Orðið „trans“, sem er notað 102 sinnum í frumvarpinu, er hvergi skilgreint. „Kynvitund trans fólks er að einhverju eða öllu leyti á skjön við það kyn sem þeim var úthlutað við fæðingu …“ Þessi ritningarorð úr trans-biblíunni eiga betur heima í 16. aldar galdraþulu en 21. aldar lagafrumvarpi. Við vitum öll að kyni er ekki „úthlutað við fæðingu“ fremur en hæð/lengd eða þyngd. Kyn er séð („observed“) og skráð.

„Trans“ eða „transgender“ er ekki nýuppgötvað, glænýtt og glansandi þriðja kyn. Allir sem einkenna sig „trans“ eru annaðhvort karlkyns eða kvenkyns. Í meira en 99,982% tilvika er einstaklingur annaðhvort ótvírætt karlkyns eða kvenkyns. Kynflokkun byggist á kynfrumutegundunum sæði og eggfrumu. Engin þriðja kynfruma er til og því er ekkert þriðja kyn til. Tilvist einungis tveggja kynja þýðir þó ekki að kyn geti aldrei verið óljóst, eins og „intersex“ einstaklingar (0,018% einstaklinga fæðast með „ódæmigerð kyneinkenni“) sýna. En tilvist intersex mannvera sannar ekki að kyn sé „fjölbreytilegt“ frekar en fæðing einfættrar mannveru afsannar að mannverur séu tvífættar (bipedal).

„Frumvarpið miðast að því að bæta réttarstöðu trans og intersex fólks og færa hana til nútímahorfs.“ „Nútímahorf“ frumvarpsins er sennilega af facebook- og tiktok-taginu, með 60-100 kyngervi. Eða wikipedia, sem nú er öll á gender-gremlensku. Lögin eiga að „standa vörð um líkamlega friðhelgi einstaklinga“. Álítur meirihluti Alþingis ákvæði XXII.-XXIV. kafla almennra hegningarlaga ekki fullnægjandi til að verja „líkamlega friðhelgi“ borgaranna?

Mér er ekki kunnugt um að ég eða aðrir borgarar sem ekki einkenna sig „trans“ (eða intersex) hafi notið sérstakrar réttarstöðu umfram „transfólk“. Fjöldi fólks þjáist eflaust af „vanlíðan gagnvart“ ýmsum líkamseinkennum sem það telur „vera í andstöðu við persónuleika“ sinn. En flestir verða bara að láta sig hafa það. Nema þeir séu „trans“. Löggjafinn hefur skapað sérstakan lúxus-trans-ríkisborgararétt sem felur í sér rétt til að láta skattgreiðendur kosta útlitsbreytandi skurðaðgerðir og ríkið breyta afturvirkt lagalegum skjölum þar til árangurinn er í samræmi við „persónuleika“ og tilfinningar trans-ríkisborgaranna.

Meira er í húfi en tilfinningar transfólks. Lögfesting transritningarorðanna er ósamrýmanleg kynbundnum réttindum. Nauðgarar og morðingjar sem „einkenna sig sem konur“ eru í kvennafangelsum. Karlar keppa í kvennaíþróttum – þar sem munur á körlum og konum er svo augljós að keisarinn er „á tippinu“ eins og börnin segja. Kyn er grundvallarforspárþáttur í upplýsingaöflun og greiningu um alla samfélagsþætti, þ.ám. heilsu, menntun, atvinnu og glæpi.

Hvaða heilvita samfélag telur eðlilegt – hvað þá þjóðþrifaverk – að löggjafinn leyfi borgurunum að breyta afturvirkt opinberum lagalegum upplýsingum og skjölum í samræmi við tilfinningar sínar?

Ríkisvaldið á ekki að styðja ranghugmyndir fólks. Hvað þá að lögfesta þær á kostnað almennings.

Colin Wright, evolutionary biologist:

https://www.realityslaststand.com/p/intersex-is-not-as-common-as-red?s=r

https://www.realityslaststand.com/p/sex-is-not-a-spectrum?s=r

Íris Erlingsdóttir
Höfundur er fjölmiðlafræ
ðingur.

Fara efst á síðu