Rússagrýlan tók við af Covid – hvaða móðursýki kemur næst?

Kórónumóðursýkin dó 24. febrúar 2022. Þá var kominn tími til að óttast eitthvað annað – nefnilega Rússana. Það ákváðu yfirvöld og fjölmiðlar. Covid „dó sama dag“ og Rússland fór inn í Úkraínu, segir prófessor emeritus Paul Lillrank í Swebbtv (sjá myndskeið að neðan).

Mikael Willgert þáttastjórnandi Swebbtv og prófessor emeritus Paul Lillrank ræddu hina meintu ógn frá Rússlandi í nýjum viðtalsþætti Swebbtv. Eða Rússagrýluna sem fjölmiðlar eru svo duglegir við að halda lifandi.

Það eru áhugaverð líkindi með kórónuveiru og Rússagrýlu. Óttinn við Covid í fjölmiðlum – sem þeim tókst að kynda undir þrátt fyrir að Covid hafði aðeins 0,1% dánartíðni fólks undir 70 ára aldri – hvarf skyndilega í febrúar 2022, þegar Rússland fór inn í Úkraínu. Þá átti fólk að hræðast Rússa í staðinn. Paul Lillrank segir:

„Við munum öll hvað gerðist með kórónuveiruna 24. febrúar 2022. Hún hvarf sama dag og stríðið í Úkraínu hófst! Hún hvarf alveg úr fjölmiðlum! Bara sí svona.

Svo ef stríðið í Úkraínu myndi hverfa úr fjölmiðlum vegna þess að Trump og Pútín eru sammála og friðarviðræður í gangi og stríðinu lýkur… Þá standa Evrópuleiðtogarnir eftir: Hvað í ósköpunum eigum við að nota til að hræða fólkið með núna?“

Að sögn Lillrank væri áhugavert að spyrja Svíana, hvort þeir vilja lifa undir Sharia-lögum eða undir Rússlandi. Hvað myndu þeir velja ef valkosturinn væri annað hvort eða?

Hann telur að útkoman yrði 90% Rússland.

Fara efst á síðu