Nýsjálenskar valkyrjur reknar af þingi vegna óhljóða – munu þær íslensku kenna þeim Galdrabók?

Það mætti halda að alþjóðafélag Valkyrja hafi ákveðið að hefja hávaðaherferð um heiminn og setja allt í uppnám með skrækjum og öðrum týndum óhljóðum. Alla vega létu þær í sér heyra á nýsjálenska þinginu og það svo kröftulega að meirihluti þingmanna rak þær tímabundið af þingi. Sjá og heyra má þær nýsjálensku á YouTube neðar á síðunni. Ekkert vantar upp á annað en að Inga Sæland og hinar forystuvalkyrjurnar íslensku fljúgi á kústsköftunum með Galdrabók og þylji upp galdrarúnir yfir þingheimi Nýja Sjálands svo hann verði mýkri við nýsjálenskar valkyrjur.

Atvikið átti sér stað í nóvember síðastliðnum þegar Te Pati Maori – flokkur Maóra – neitaði að svara spurningu um hvort þeir styddu frumvarp sem ætlað var að skýra meginreglur Waitangi-sáttmálans, sem undirritaður var árið 1840 milli bresku krúnunnar og höfðingja Maóra.

Í staðinn valdi yngsti þingmaður flokksins, 22 ára gamla Hana-Rawhiti Maipi-Clarke, að hefja haka – háværa athöfn Maóra – í miðju þinghúsinu. Samtímis reif hún frumvarpið í sundur.

Hún er núna í sjö daga nálgunarbanni þingsins. Leiðtogar flokksins, Rawiri Waititi og Debbie Ngarewa-Packer, munu fá 21 dags bann sem er lengsta nálgunarbönn í þingsögu Nýja-Sjálands. Samkvæmt BBC News sagði Hana-Rawhiti Maipi-Clarke eftir tilkynninguna með tárin í augunum:

„Við munum aldrei láta þagga niður í okkur og okkur mun aldrei verða útrýmt. Eru raddir okkar of háværar fyrir þetta þing? Er verið að refsa okkur vegna þess?“

Utanríkisráðherrann Winston Peters neitar að biðjast afsökunar á því að hafa kallað flokkinn „hóp öfgafólks“ og sagt að landið hafi „fengið sig fullsadda af þeim.“ Te Pati Maóri fullyrðir að þeim sé „refsað vegna þess að þær eru Maórar.“ Flokkurinn slær föstu:

„Við erum stolt af því að vera ósveigjanlegir Maórar.“

Bakgrunnurinn er hið umdeilda frumvarp um sáttmálareglur, sem hefur vakið mikla reiði meðal Maóra. Frumvarpið, sem ACT-flokkurinn lagði fram, sem er andvígur hömlulausum fólksinnflutningum, leitast við að endurtúlka Waitangi-sáttmálann og segir hann sundra landinu út frá kynþáttafordómum. Mikil mótmæli voru gegn frumvarpinu sem náðu hámarki í níu daga mótmælagöngu, hikoi, í Wellington með yfir 40.000 mótmælendum. Í apríl var frumvarpið fellt með 112 atkvæðum gegn 11.

Íhaldsstjórnin undir forystu forsætisráðherrans Christophers Luxon hefur verið gagnrýnd fyrir að skera niður stuðning til Maóra. Stjórnin neitar að það sé vegna kynþáttafordóma og Luxon segir:

„Þetta snýst ekki um haka, heldur um að flokkar fylgi ekki reglum á þingi.“

Fara efst á síðu