Mun alþjóðlegi sósíalistinn Kristrún Frostadóttir taka upp Prevent á Íslandi?

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra Íslands og Keir Starmer forsætisráðherra Bretlands eru sætabrauðsfélagar í sósíalíska Internationalen sem eru alþjóðasamtök sósíalista og vinstri manna. Ríkisstjórn Starmers hefur komið á fót verkefninu Prevent sem notar lögreglu og leyniþjónustu til að njósna um fólk til að finna einstaklinga sem hafa áhyggjur af fjöldainnflutningum. Slíkar áhyggjur eru skilgreindar af yfirvöldum Bretlands sem „hryðjuverkahugmyndafræði“ og hefur ríkisstjórn Breta tekið fram verkefnið Prevent til að vinna gegn slíkri öfgahyggju. 

Ef Prevent yrði tekið upp á Íslandi að hætti breska Verkamannaflokksins, flokksbræðra Samfylkingarinnar, þá myndu 72% Íslendinga falla undir skilgreiningu um menningarlega þjóðernishyggju af því að þeir hafa áhyggjur af galopnum Schengen landamærum Íslands.

Samkvæmt opinberum gögnum er „menningarleg þjóðernishyggja“ talin vera einstaklingsbundin sannfæring sem gæti leitt til þess að viðkomandi falli undir skilgreiningu Prevent um hryðjuverkahugmyndafræði. Starfsfólk sem sækir námskeiðið fær að heyra að Prevent taki yfir, þegar viðkomandi heldur að „vestræn menning sé í hættu vegna fjöldaflutninga og skorts á samþættingu ákveðinna þjóðernis- og menningarhópa.“ Netnámskeið Prevent eru aðgengileg á vefsíðu bresku ríkisstjórnarinnar og árlega sækja þúsundir kennara, lögreglumanna, heilbrigðisstarfsmanna og annarra opinberra starfsmanna námskeið á vegum Prevent.

Þetta er nýjasta dæmið um hvernig ríkið og yfirvöld eru í auknum mæli að takmarka tjáningarfrelsið. Gagnrýnendur vara við því að skilgreiningin á „menningarlegri þjóðernishyggju“ sé of víðtæk og gæti í orði kveðnu þýtt að jafnvel Keir Starmer forsætisráðherra sjálfur félli undir skilgreininguna miðað við fyrri ummæli. Aðrir sem gætu verið í hættu á að vera stimplaðir sem öfgamenn eru meðal annars rithöfundurinn Douglas Murray, sem hefur skrifað mikið um fólksflutninga.

Samtímis fer ótti vaxandi um að lögreglan sé ranglega að takmarka tjáningarfrelsið en samkvæmt talsmanni innanríkisráðuneytisins snýst „Prevent ekki um að takmarka umræður eða tjáningarfrelsi, heldur um að vernda þá sem eru viðkvæmir fyrir öfgahyggju.“

Kristrún leikur sér að eldinum

Lord Young, aðalritari breska Málfrelsissambandsins varar við því að hver sá sem fellur undir Prevent geti orðið fyrir „alvarlegum, langtímaafleiðingum“ á möguleikum til menntunar og atvinnu og vegna skerts mannorðs.

Prevent miðar að því að bera kennsl á fólk í hættu á að snúa sér að hryðjuverkum, sem síðan er vísað til Prevent áætlunar ríkisstjórnarinnar að bægja burtu hættum á hryðjuverkum. Persónuupplýsingar þeirra sem vísað er til eru geymdar í gagnagrunnum Prevent í að minnsta kosti sex ár og deilt milli lögreglu og leyniþjónustunnar. Skólum, háskólum, sjúkrahúsum og öðrum opinberum aðilum ber lagaleg skylda til að koma í veg fyrir að fólk dragist inn í hryðjuverk.

Kristrún Frostadóttir leikur sér með eldinn þegar hún ræðir um óskilgreinda 70 milljarða fjárlög til varnarmála og telur upp inviði, netárásir og fjöldaógnir sem dæmi. Málið er að hún og flokkssystkini hennar í sósíalíska Internationalen breyta vörnum ríkisins í varnir flokksins og hafnar eru nornaveiðar á stjórnarandstæðingum meðal almennings. Það passar eins og höndin í hanska ritskoðunar ESB sem er að koma á fullkomnu eftirliti með öllum einstaklingum aðildarríkjanna, hvað þeir skrifa og tala í stafrænum tækjum svo hægt sé að finna stjórnarandstæðinga og koma í veg fyrir málefnalegar umræður. 

Þetta er að hætti alræðisríkja kommúnismans. Flokkurinn er ríkið. Einungis valdhafar teljast til marktækra einstaklinga. Aðrir eru einungis tölur á blaði.

Fara efst á síðu