Fyrrverandi forseti Rússlands, Dmitry Medvedev sem núna gegnir stöðu varaformanns öryggisráðs Rússlands, fullyrðir að fleiri lönd séu tilbúin að senda kjarnorkuvopn til Íran. Yfirlýsingin kemur í kjölfar loftárása Bandaríkjanna á kjarnorkuver í Íran.
Í röð færslna á samfélagsmiðlinum X tjáir Medvedev sig um afleiðingar sprengjuárásar Bandaríkjanna á Íran. Medvedev skrifar:
„Auðgun kjarnorkuefna og núna getum við sagt það hreint út, framleiðsla á kjarnorkuvopnum, – mun halda áfram.“
Medvedev bætir við að „mörg lönd séu tilbúin að afhenda Íran kjarnorkusprengjur,“ án þess að nefna hvaða lönd hann er að tala um.
Rússland hefur lengi verið einn helsti verjandi kjarnorkusamstarfs við Íran og hefur andmælt viðskiptaþvingunum Vesturlanda gegn Teheran.
Yfirlýsing Medvedevs kemur í kjölfar loftárása Bandaríkjanna á sunnudagskvöldið á íranskar kjarnorkuverksmiðjur í Isfahan, Natanz og Fordow. Samkvæmt hershöfðingjanum Dan Caine hjá bandaríska herráðinu tóku meira en 125 flugvélar þátt í aðgerðinni, þeirra á meðal B-2 Spirit orrustuflugvélar.
Rússnesk yfirvöld hafa áður boðist til að miðla málum milli Ísraels og Írans til að binda endi á stríðið. Rússar hafa einnig lagt til að Bandaríkin og Íran semji nýjan kjarnorkusamning en stjórn Trumps hefur hafnað þessu frumkvæði. Trump sagði að Rússar yrðu fyrst að „takast á við sín eigin stríðsátök.“
Þegar Barack Obama undirritaði svokallaðan Íransamning árið 2015 gegndi Rússland lykilhlutverki. En árið 2018 kaus Trump að draga sig einhliða út úr samningnum. Hér að neðan má hlýða á útskýringu Barack Obama fv. forseta Bandaríkjanna um afstöðu hans til Írans og Ísraels: