Karl Gunnarsson flugstjóri hefur búið í Kanada í áratugi og þekkir land og þjóð mjög vel. Hann greinir hér frá ástandinu í Kanada og hvernig Kínverjar hafa keypt upp jarðir og aðgang að auðlindum Kanada með dýrmætum málmum. Hann lýsir stöðunni þannig að Kanada sé í vasa Kína.
Kínverjar hafa að sögn Karls einnig byggt eiturlyfjaverksmiðjur í Kanada og smygla Fentanyl til Bandaríkjanna með þeim ásetningi að drepa eins marga Bandaríkjamenn, unga sem aldna, og hægt er. Hann sagðist ekki hafa trúað þessu fyrst en síðan sannreynt að svo sé. Hann segir það vera markmið Kínverja að drepa Bandaríkjamenn með eiturlyfinu. Þá hafi Kínverjar keypt jarðir og aðgang að dýrmætum málmum í Kanada og eru umsvif þeirra orðin slík að rætt sé um að:
„Kanada sé orðið 24. héraðið í Kína.“
Stór héruð í Kanada hafa breytt löggjöfinni, þannig að hver sem er getur keypt aðgang að eftirsóttum málmum. Nýlega var ákveðið að þinginu væri lokað í 11 vikur og segir Karl að ríkisstjórnin noti tímann til að taka ákvarðanir fram hjá þinginu og öllu lýðræði og Gústaf bætti við: „Eins og ríkisstjórnin á Íslandi.“ Forsætisráðherra Kanada hefur iðulega hyllt Kína fyrir hvað allt er gott þar og til fyrirmyndar sérstaklega fjármál, framleiðsla og markaðssetning:
„Allt sem Kína vill gera í Kanada fær Kína heimild fyrir.“
Kínverski kommúnistaflokkurinn flytur út eigið eftirlitskerfi með kúguðum landsmönnum sem hálfblindir siðspilltir stjórnmálamenn á Vesturlöndum kaupa. Síðan eru settar upp myndavélar í tugþúsunda tali með sama andlitsgreiningarkerfi og kommúnistar nota í Kína gagnvart eigin landsmönnum. Nýlegt dæmi er ákvörðun sænsku ríkisstjórnarinnar að setja upp fimm þúsund slíkar myndavélar víðs vegar í Svíþjóð.
Ísland á að vera algjörlega hlutlaust land
Frá Kína barst talið að gyðingahatri en nýlega fleygði maður bensínsprengjum á gyðinga í Colorado sem voru saman komnir til hátíðahalda. Fjöldi manns særðist en maðurinn var stuðningsmaður Hamas líkt og sá sem drap tvo gyðinga nýlega í Washington. Karl Gunnarsson segir ofbeldi fylgja mannkyninu og borin von sé að það verði nokkurn tíma friður. Talið berst að Íslandi og Karl segir:
„Mér þykir það leitt að íslenskir stjórnmálamenn sem eru við völd á Íslandi vilja ganga með í Evrópusambandið. Ísland hefur sérstaka stöðu, ekki bara með fiskimiðin, landbúnað og fallega náttúru. Ísland á að vera eins og Sviss. Ísland á að vera algjörlega hlutlaust land. Engin vopn – ekkert – nema kannski landhelgisgæslu sem passar upp á fiskimiðin. Ísland á að vera eins og var hér á árum áður og ekki ganga í Evrópusambandið. ESB verður liðið undir lok eftir nokkur ár.“
Karl Gunnarsson hlær að því, að íslenskir ráðherrar hafi skuldbundið Ísland að fylgja hernaðarstefnu ESB sem er að fara í stríð við Rússland og telur enga líkur á því að slíkt stríð vinnist. Hann segir það tómt kjaftæði að ástæðan fyrir áhuganum á Úkraínu sé sú að landið vilji ganga með í Nató. Vert er í því samhengi að benda á að bandaríski öldungadeildarþingmaðurinn Lindsey Graham sagði að í Úkraínu væru málmar jafngildi trilljóna dollara sem gæti verið gott fyrir efnahag Bandaríkjanna. Ef auðlindir Úkraínu eru góðar fyrir Bandaríkin, þá eru þær einnig góðar fyrir aðra. Karl Gunnarsson ítrekar:
„Ísland hefur sérstöðu sem bæði land og þjóð. Á meðan við lifum þá verðum við að gera eitthvað gott fyrir þá sem eru fæddir og eru að alast upp. Við þurfum að miðla af okkar reynslu, kunnáttu og samtímis læra frá þeim sem ungir eru. Eldra fólk kann ekki allt og margir ungir kunna meira en þeir gömlu. Við þurfum að standa saman í hlutverki okkar að ala upp börn og skipta um bleiur. Það mikilvægasta er að halda áfram.“
Eftir þau orð var íslenski þjóðsöngurinn eina lagið sem passaði við og leikinn í enda viðtalsins sem sjá má hér að neðan: