Karl Gunnarson flugstjóri býr í Ottawa, höfuðborg Kanada. Í þessum fyrsta samtalsþætti við Þjóðólf skýrir hann frá ástandinu í Kanada, verðbólgu og efnahagserfiðleikum venjulegs fólks að eignast þak yfir höfuðið svipað og á Íslandi. Þegar hann kom til Kanada 1973, þá var allt ódýrara þar en á Íslandi. En óstjórn Frjálshyggjuflokksins undir leiðsögn Justin Trudeau hefur skert lífskjör almennings og verðbólga geisar.
Frjálshyggjumenn eru komnir svo langt til vinstri að munurinn á þeim og kommúnistum er hverfandi. Karl Gunnarsson greinir frá samtali kanadískra lögreglumanna sem ræddu um „kínverskar lögreglustöðvar“ utan við lög og rétt sem rændu Kínverjum sem jafnframt eru kanadískir ríkisborgarar. Eru þeir handteknir og settir um borð í flugvélar sem flogið er erlendis og ekkert spyrst til þeirra síðan. Kanadísk yfirvöld aðhafast ekkert í málinu.
Kínverjar setja upp „aðhlynningarstofur“
Þessar óhuggulegu aðferðir er þó ekki einungis bundnar við Kanada. BBC hafði frétt um málið fyrir tveimur árum og Karl Gunnarsson segir að rætt sé um að minnsta kosti hundrað slíkar lögreglustöðvar sem séu starfandi í 50 löndum. Kínverjar segja að um „aðhlynningarstofur“ sé að ræða sem Karl gefur ekki mikið fyrir.
Hann greinir einnig frá sneypuferð Trudeau í bandaríska sendiráðið rétt áður en hann sagði af sér embætti bæði sem formaður Frjálslynda flokksins og forsætisráðherra Kanada. Eitthvað gerðist inni á sendiráðinu, því Trudeu kom út eins og hann hefði verið hundskammaður.
Áhugi Bandaríkjamanna á Grænlandi er ekki nýr af nálinni
Karl Gunnarsson segir einnig frá því að áhugi Donald Trump á Grænlandi sé ekki nýr af nálinni, því hann hafi boðið Danmörku Costa Rica í skiptum fyrir Grænland á fyrra forsetatímabili sínu. Hann segir Grænland vera hernaðarlega mikilvægt Bandaríkjunum vegna skipaleiða norður af Grænlandi, Kanada og Alaska, sem hægt er að halda núna opnum allan ársins hring.
Ritskoðun
Karl Gunnarsson segir að hann geti ekki lengur fengið til dæmis brandara frá vinum á Íslandi á Facebook, þar sé bara tómt, þannig að ritskoðun virðist vera í gangi sem stemmir vel við yfirlýsingar Trudeau um samstarf við Sameinuðu þjóðirnar, WEF og ESB um „að berjast gegn hatursumræðu á netinu.“ ESB ætlar að herða hatursskoðun og verður ekkert stafrænt tæki undanskilið né nein einkamál. Með því fá yfirvöld alræðisvald á töluðu og skrifuðu máli og geta ritskoðað og handtekið stjórnarandstæðinga eins og byrjað er að gera til dæmis í Englandi, Svíþjóð og nú á að gera í Þýskalandi með tilraun til að banna Valkost fyrir Þýskaland með lögum.
Útbreiðsla fátæktar
Karl Gunnarsson segir frjálslynda stjórn Kanada hafa hleypt auðkýfingum inn á húsnæðismarkaðinn og hafi þeir keypt heilu blokkirnar og leigja út á okurverði. Varla er hægt að leigja litla íbúð undir 2000 dollara á mánuði. Fyrir utan ofsóknir Trudeau með herlögum og bólupössum á flutningabílstjóra, ritskoðun og verðbólgu hafi því útbreiðsla fátæktar bæst við afrekalista Trudeau.
Viðtalið snertir hjartans strengi og er fróðlegt að hlusta á þessa spennandi frásögn manns sem búið hefur í mörgum löndum sem hann þekkir einnig vel vegna starfs síns sem flugstjóri meðal annars hjá ísraelska flugfélaginu El Al.
Hlusta má á þáttinn hér að neðan: